Jón Steinar konungur sératkvæðanna 9. júní 2008 18:30
Enginn hæstaréttardómari hefur skilað viðlíka fjölda sératkvæða í dómum réttarins og Jón Steinar Gunnlaugsson. Umdeildustu dómararnir skila flestum sératkvæðum. Lögspekingar telja þau ýmist eðlilegan fylgifisk flókinna mála eða merki um flokkadrætti og slæman samstarfsanda í Hæstarétti. Það eru skiptar skoðanir um það meðal lögfróðra manna hvort gott sé eða slæmt að dómarar skili sératkvæðum. Hitt er víst að tveir menn skera sig úr hópi dómara í Hæstarétti þegar talin eru sératkvæði sem skilað hefur verið frá því haustið 2003. Alls skiluðu dómarar sératkvæðum í 121 máli á þessum tæpu fimm árum.Tíu af þeim tólf dómurum sem skiluðu sératkvæðum á þessu tímabili hafa gert það frá einu skipti og upp í ellefu sinnum, að meðaltali í tæplega sex skipti.Þeir tveir sem skera sig úr - eiga það sameiginlegt að skipun þeirra var ákaflega umdeild. Annar er Ólafur Börkur Þorvaldsson. Hann hefur í 29 skipti séð ástæðu til að skila sératkvæði. Hinn er Jón Steinar Gunnlaugsson sem hefur skilað sératkvæði átta sinnum oftar en meðaldómarinn á þessu tímabili - eða 47 sinnum. Flestir þeirra lögmanna sem fréttastofa Stöðvar 2 ræddi við í dag, telja að sératkvæði geti verið mikilvæg og eða eðlileg. Róbert Spanó, lagaprófessor við Háskóla Íslands, segir ágreining meðal dómara eðlilegan fylgifisk þess að Hæstiréttur leysi úr flóknum viðfangsefnum. Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmaður segir flest sératkvæði snúast um sönnunarmat og þau væru hið besta mál, sýndu að dómurinn væri skipaður fólki með fjölbreyttan bakgrunn. Enda sé lögspeki engin náttúruvísindi. Hins vegar hefðu dómar Hæstaréttar minna fordæmisgildi þegar þriggja eða fimm manna dómur klofnar með sératkvæðum.Sumir lögmenn sögðu lotterí hjá hvaða dómurum menn lentu, og gæti haft úrslitaáhrif á dómsniðurstöðu. Aðrir sögðu sératkvæði vísbendingu um slæman samstarfsanda meðal hæstaréttardómara og flokkadrætti. Einn orðaði það svo að allir vissu hvernig skipun Ólafs Barkar og Jóns Steinars væri tilkomin - sérálit þeirra ættu ekki að koma nokkrum á óvart.
Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Fleiri fréttir Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Sjá meira