Erlent

Ahtisaari hlýtur friðarverðlaun Nóbels.

Martti Ahtisaari, fyrrverandi forseti Finnlands, hlýtur friðarverðlaun Nóbels í ár. Frá þessu var greint í morgun.

Fram kemur á vef Nóbelsakademíunnar að Ahtisaari hafi í meira en þrjá áratugi og í nokkrum heimsálfum unnið að lausn alþjóðlegra deilumála.

Ahtisaari , sem fæddur árið 1937, var forseti Finnlands á árunum 1994-2000. Hann hefur miðlað málum á vegum Sameinuðu þjóðanna í ýmsum málum í starfi erindreka, nú síðast sem sérstakur erindreki í Kosovo-deilunni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×