Erlent

Stjórnvöld verða að bregðast við efnahagskreppunni

Barack Obama
Barack Obama

Forsetaframbjóðandi demókrataflokksins, Barack Obama, segir að bandaríska fjármálaráðuneytið og ríkissjóður búi yfir ráðum til þess að bregðast við þeirri efnahagslegu kreppu sem nú vofir yfir. Nú verði einfaldlega að beita þeim.

Obama segir aðkallandi að ráðamenn bregðist fljótt við og komi 700 milljarða dollara björgunarpakkanum sem þingið samþykkti á dögunum sem fyrst út í viðskiptalífið.

„Það sem þeir þurfa að gera er að beita þeim ráðum sem þeir hafa sem fyrst," sagði Obama við Reuters fréttastöðina þar sem hann var staddur í Columbus og heilsaði upp á sjálfboðaliða sína í kosningabaráttunni.

„Við höfum gefið þeim vald til þess að aðstoða bankana, við höfum gefið þeim vald til þess að kaupa upp eignir, við höfum meira að segja gefið þeim vald til þess að sækjast eftir ábyrgð. Ríkið er nú þegar að nota vald sitt á blaðamarkaði."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×