Innlent

Stimpilgjöld fyrstu fasteignakaupa af í árslok

Böðvar Jónsson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra.
Böðvar Jónsson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra.

Búast má við að frumvarp til laga, sem fjalla um afnám stimpilgjalda af lánum vegna fyrstu húsnæðiskaupa, verði lagt fyrir Alþingi á vormánuðum en frumvarpið er nú á undirbúningsstigi. Þetta segir Böðvar Jónsson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra, sem á von á að lögin taki gildi undir lok ársins hljóti frumvarpið náð þingsins.

„Yfirlýsingin [sem ríkisstjórnin gaf út] gerði ráð fyrir að fella niður í þessum áfanga stimpilgjald á lántöku vegna fyrstu íbúðakaupa," sagði Böðvar en hann á ekki von á að frumvarpið sem nú er í undirbúningi nái til fasteignaviðskipta almennt. Það skref segir hann hins vegar stefnt á að stíga þegar aðstæður á markaði gefi tilefni til.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×