Karadizc heillaði landa sína með náttúrusmyrslum 26. júlí 2008 18:39
Á meðan Radovan Karadizc fór huldu höfði ferðaðist hann meðal annars til Austurríkis og heillaði landa sína þar með handayfirlagningu og náttúrusmyrslum. Lögreglumenn sem ræddu við hann þar grunaði aldrei að þessi skeggjaði og síðhærði spekingur væri í raun eftirlýstur fyrir stríðsglæpi og fjöldamorð. Stuðningsmenn hans heima eru reiðir yfir handtökunni. Þúsundir manna hafa safnast saman víðsvegar í héruðum Bosníu-Serba, þar á meðal í borginni Pale austur af Sarajevo, þar sem Karadizc átti sér traust vígi á stríðstímanum. Þar safnaðist fólk saman undir myndum af forsetanum fyrrverandi og klæddist skyrtum með áletrun eins og Serbnesk hetja. Handtaka Karadizcs hefur vakið reiði í hópi serbneskra þjóðernissinna sem telja handtökuna enn eina sönnun þess að Vesturlönd ofsæki Serba og kenni þeim um allt sem miður fer. Nú beinist reiðin einnig að þeim sem leyfðu að Karadizc væri handtekinn og að leitin að honum hafi valdið þjáningu fjölmargra saklausra borgara. Og víðar er mótmælt. Róttækir þjóðernissinnar fara daglega um götur Belgrað og mótmæla handtökunni og því hvernig alþjóðlegir fjölmiðlar hafa sagt frá málinu. Á blaðamannafundi flokks róttækra þjóðernissinna, stuðningsmanna Karadizc, sakaði formaður flokksins forseta Serbíu, Boris Tadic, um föðurlandssvik og sagði að hann gæti allt eins mætt sömu örlögum og Zoran Djindjic, forsætisráðherrann sem var skotnn til bana 2003. Um helgina hefur verið upplýst að á þeim árum sem Karadizc fór huldu höfði hafi hann meðal annars ferðast til Austurríkis og heilað landa sína þar með handayfirlagningu og náttúrusmyrslum. Lögregla hafi fyrir tilviljun yfirheyrt hann vegna óskylds máls - en ekki áttað sig á að þessi síðskeggjaði og síðhærði spekingur væri í raun eftirlýstur stríðsglæpamður og fjöldamorðingi.
Mest lesið Vísbendingar um að síðasta vígið sé fallið Innlent Klara Baldursdóttir er látin Innlent Konan sem féll í Brúará er látin Innlent Ummæli Kolbrúnar blaut tuska í andlit ungmenna Innlent Deilurnar halda áfram og Musk boðar „Ameríkuflokkinn“ Erlent „Erum ekki dúkkur sem Snorri getur sagt fyrir verkum“ Innlent Kýldi konu eftir kynmök: „Hvað, getur þú ekki meira?“ Innlent Aftur logar eldur í Læradal Erlent Glittir í endurkomu sumarsins Veður Fimm frumvörp fjögurra ráðuneyta samþykkt Innlent Fleiri fréttir Wagner yfirgefur Malí í skugga mikilla árása Mótmæli og átök eftir áhlaup ICE í Los Angeles Aftur logar eldur í Læradal Deilurnar halda áfram og Musk boðar „Ameríkuflokkinn“ Stærsta árásin á Kharkív hingað til Var fluttur óvart úr landi en er snúinn aftur Engin sátt í sjónmáli: Trump vill selja Tesluna Klóra sér í kollinum yfir stórri reikistjörnu á braut um litla stjörnu Reyna að stilla til friðar með símtali Dæmdur í 21 árs fangelsi fyrir að nauðga tugum skjólstæðinga Bras á breska Umbótaflokknum þrátt fyrir velgengnina Brotlentu öðru einkafari á tunglinu Fyrirsjáanlegar deilur: Valdamesti maður heims og sá ríkasti hnakkrífast Eldar loguðu í Kænugarði eftir umfangsmiklar árásir Rússa Segir nafn Trumps vera í Epstein-skjölunum Trump segist „mjög vonsvikinn“ út í Elon og ekki viss um að þeir geti átt gott samband Ákærð fyrir að myrða táning en líkið enn ófundið Sagður verulega ósáttur við gagnrýni Musks Fíll ruddist inn í matvöruverslun Bannar nú erlenda nemendur í Harvard á grunni þjóðaröryggis Felldu tillögu um að olíusjóðurinn sniðgengi fyrirtæki á hernumdu svæðunum Krefst fimm prósenta til varnarmála: „Allir þurfa að leggja hönd á plóg“ Endurvekur ferðabannið Telja rúmensk glæpagengi smygla matarsendlum inn í Ósló Birtir þrisvar sinnum fleiri færslur en áður Svíar leigja fangelsispláss í Eistlandi Reyndi að bragðbæta baneitruðu máltíðina Musk hraunar yfir „stórt og fallegt“ frumvarp Trumps Rýming í Köln vegna þriggja sprengja frá seinni heimsstyrjöldinni Aftur hafin leit að Madeleine McCann Sjá meira