Elton John hefur haldið tónleika í öllum fylkjum Bandaríkjanna 26. júlí 2008 13:00 Elton John
Elton John hélt sína fyrstu tónleika í Bandaríkjunum árið 1970 og hefur komið þangað reglulega síðan. En það tók hann nær fjóra áratugi að halda tónleika í öllum 50 ríkjunum. Markinu var náð í vikunni þegar hann spilaði í Vermont á austurströndinni. Hann hefur lagt á það áherslu á síðustu árum að spila á stöðum sem eru utan alfaraleiðar stórstjarnanna, og segir að áheyrendur þar séu yfirleitt þakklátari en á stöðum þar sem stórtónleikar eru haldnir reglulega. Og hvar sem Elton kemur notar hann tækifærið til að minna á sitt hjartans mál - sem er baráttan gegn alnæmi. Hann hefur áhyggjur af því að ungt fólk sé kærulaust þegar kemur að ábyrgu kynlífi. Það fái sér í glas eða taki fíkniefni og þá fjúki öll aðgæsla út um gluggann. Á undanförnum árum og áratugum hefur Elton John varið miklum fjárhæðum til baráttunnar gegn alnæmi, mest í gegnum sjóð sem hann setti á laggirnar og ber nafn hans. Allur ágóði af tónleikunum í Vermont rann í þennan sjóð - og það sama má segja um sölu af rjómaís sem íssölufyrirtækið Ben & Jerry's setti á markað þá vikuna og heitir eftir einni bestu plötu meistarans, Goodbye Yellow Brick Road.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Tvær þyrlur sendar og hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs slyss Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Sjá meira