Erlent

FARC hafna frönsku sendinefndinni

Þessa mynd af Ingrid Betancourt birtu skæruliðar FARC í lok nóvember 2007.
Þessa mynd af Ingrid Betancourt birtu skæruliðar FARC í lok nóvember 2007. MYND/AP

FARC skæruliðarnir í Kólombíu hafa neitað að hleypa franskri sendinefnd inn á yfirráðasvæði sitt í frumskógum landsins. Í sendinefndinni voru meðal annara læknar sem ætluðu að hlúa að Ingrid Betancourt, stjórnmálakonunni sem verið hefur í haldi FARC í sex ár.

Skæruliðarnir segja að frönsk stjórnvöld hafi ekki haft þá með í ráðum þegar ákveðið var að senda hópinn Betancourt, sem er með franskt vegabréf, til hjálpar og því sé ekki til umræðu að þeir fái að hitta hana.

Betancourt var á kosningaferðalagi þegar henni var rænt en hún sóttist eftir forsetaembættinu í Kólombíu. FARC skæruliðarnir hafa 39 einstaklinga í haldi en þeir vilja skipta á þeim og 500 félögum sínum sem sitja í fangelsum í landinu. Forseti Kólombíu, Alvaro Uribe, hefur hins vegar ítrekað lýst því yfir að slíkt komi ekki til greina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×