Erlent

Stúlka með tvö andlit talin endurholdgun hindúagyðju

Lali ber tvö andlit líkt og rómverski guðinn Janus og hindúagyðjan Durga.
Lali ber tvö andlit líkt og rómverski guðinn Janus og hindúagyðjan Durga. MYND/AP

Íbúar indverska þorpsins Saini Sunpura tilbiðja nú stúlkubarn sem fæddist með tvö andlit og telja það endurholdgaða hindúagyðju. Barnið þjáist af mjög sjaldgæfu sjúkdómsástandi sem veldur því að eitt höfuð ber tvö andlit og þar með tvennt af öllu sem andliti fylgir - nema eyrum.

Stúlkan, sem heitir Lali, fæddist 11. mars og hlaut þegar verðskuldaða athygli þorpsbúa sem eru hjátrúarfullir og telja hana Durga, gyðju hugprýði í hindúasið, endurholdgaða en sú bar þrjú augu og hafði fjölmargar hendur. Þorpshöfðinginn segist íhuga að reisa hof til heiðurs Durga í þorpinu og hefur hann þegar óskað eftir fjárstyrk frá stjórn héraðsins til þeirra framkvæmda og auk þess til að styðja við foreldra stúlkunnar.

Læknir á sjúkrahúsinu á staðnum segir Lali hegða sér að öllu leyti eins og önnur börn á hennar aldri, hún drekki mjólk með báðum munnunum og blikki öllum fjórum augunum í takt.

AP greindi frá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×