Erlent

Robert Gates áfram varnarmálaráðherra

Robert Gates.
Robert Gates.
Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Robert Gates, hefur þekkst boð Baracks Obama um að gegna áfram embættinu eftir að Obama tekur við sem forseti í janúar. Þetta er fullyrt á vefsíðunni Politico. Þá er sagt að James Jones, hershöfðingi á eftirlaunum, verði útnefndur öryggismálaráðgjafi Hvíta hússins. Sagt er að formlega verði tilkynnt um útnefningarnar í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×