Kannabisræktun í bílskúr Ómars 3. desember 2008 07:00 Komst fyrir tilviljun að því að bílskúr hans hýsti kannabisræktun. „
Þetta var fyndið. Ég á sem sagt íbúð og bílskúr sem ég keypti og hafði hugsað sem eftirlaunasjóð. Leigði þetta út hvort í sínu lagi," segir Ómar R. Valdimarsson ræðismaður. Ómar komst óvænt á snoðir um að bílskúr hans við Hrísateig var notaður undir kannabisræktun. Leigjandi hans var búinn að koma þar fyrir plöntum og þar til gerðum lömpum. En áfram með söguna. „Já, ég ætlaði sem sagt að borga íbúðina niður með því að leigja hana. En svo kom á daginn að verðbólgan var á góðri leið með að éta upp eignarhlutann þannig að ég setti mig í samband við Hannes Steinþórsson, fasteignasala þeirra ríku og frægu - að eigin sögn." Þegar svo kom að því að sýna íbúðina og bílskúrinn reyndist ekkert mál að koma því við hvað íbúðina snerti. „En sá sem var með bílskúrinn tók dræmlega í það, sagði að félagi sinn væri með búslóð sína í geymslu í skúrnum og hann hefði tekið með sér bílskúrsopnarann út á land." Ómari þótti þetta sérkennilegt en ákvað að hringja í Neyðarvaktina til að fá skúrinn opnaðan. Þegar hann kom að bílskúrnum var þar ljós og skuggar á ferli innan dyra. Ómar bankaði upp á. „Þá var minn maður í óða önn að troða kannabisplöntum í plastpoka. Sagði að sig hafi vantað pening en ég sagðist ætla að hringja í lögguna - núna. „Já," sagði hann þá greyið og beið þess sem verða vildi. Hann hafði leigt bílskúrinn í einhverja tvo mánuði þannig að þetta var nú ekki mikill gróður. Ég hugsa að hann fari í eitthvað uppbyggilegra úr þessu."
Mest lesið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Lífið Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest Lífið Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Lífið „Við teljum að þetta verði sögulegir tónleikar“ Tónlist Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Lífið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Laufey lifnar við í Fortnite Festival Leikjavísir Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Sjá meira