Lífið

RÚV-arar neita að bera HIV-merki

Gunnlaugur Grétarsson Varð mjög hissa þegar hann rakst á vegg í líki Ingólfs Bjarna við Efstaleitið.
fréttablaðið/anton
Gunnlaugur Grétarsson Varð mjög hissa þegar hann rakst á vegg í líki Ingólfs Bjarna við Efstaleitið. fréttablaðið/anton

„Ég varð hissa á viðbrögðum hans. Mjög hissa. Það er jú árið 2008. Og erfitt að berjast við tabú þegar ríkisbáknið neitar að taka þátt," segir Gunnlaugur Grétarsson, formaður HIV Ísland - alnæmissamtakanna.

Á mánudaginn var alþjóðlegi alnæmisdagurinn og Gunnlaugur fór um víðan völl og hvatti menn til að setja í barm sér merki um baráttuna gegn alnæmi. Fréttamenn Stöðvar 2 tóku honum vel og settu þulir upp merkið en þegar í Efstaleiti kom rakst Gunnlaugur á vegg í líki Ingólfs Bjarna Sigfússonar varafréttastjóra.

„Hann tjáði mér að þetta væri mjög viðkvæmt mál þar sem nælan væri tengd einhverju tabúi! Eins og alnæmi. Það er viðkvæmt mál á þessum ríkisrekna fjölmiðli," segir Gunnlaugur sem stökk að sögn snöggvast upp á nef sér við þessar móttökur. Segir þetta til siðs í sjónvarpi víðs vegar í hinum vestræna heimi.

„Það er ekki verið að bendla sig við nein samtök heldur aðeins minna á baráttuna gegn þessum sjúkdómi. Og það var ekki eins og ég væri að betla af honum pening heldur aðeins biðja þuli að bera merkið til stuðnings þeim sem jákvæðir eru og aðstandendum þeirra."

Gunnlaugur vill þó taka skýrt fram að umfjöllun Ríkissjónvarpsins um HIV-daginn og sjúkdóminn hafi verið til mikillar fyrirmyndar.

Ingólfur Bjarni segir þetta einfaldlega ekki samræmast því hlutverki sem þeir á RÚV álíti fréttaþuli vera í í útsendingu. „Skiptir ekki máli hvaða merki eða málstaður það er. Kannski er þetta púrítanskt viðhorf en það passar ekki að þú sért fréttamaður og kynnir sem slíkur skoðun og viðhorf með þessum hætti eða öðrum."

Ingólfur Bjarni segir engar sérstakar reglur að finna um barmmerki en vinnureglur séu um ótrúlegustu atriði og ekki þurfi að lesa lengi þar til að finna út að barmmerki samræmist ekki vinnureglum á RÚV:

„Að þetta sé tabú, þá er það misskilningur Gunnlaugs. Ég var ekki að vísa til HIV eða samtakanna heldur nælanna sem slíkra."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.