Tættur tími framundan, segir Hallgrímur Helgason 3. desember 2008 14:26
Fyrsta skáldsaga Hallgríms Helgasonar í þrjú ár hefur mælst mjög vel fyrir á þeim stutta tíma sem er liðinn frá útgáfu hennar. Sagan nefnist 10 ráð til að hætta að drepa fólk og byrja að vaska upp og fjallar um króatíska leigumorðingjann Toxic sem endar fyrir röð tilviljana á Íslandi. Tættur tími framundan „Tættur tími. Upplestrar, ímeilar og yrkingar. Greinaskrif, viðtöl og mótmælafundir. Þess á milli reynir maður svo að lesa kollegana og syngja með börnunum," svarar Hallgrímur rithöfundur aðspurður út í hans tíma fram að jólum. Hvernig ferðu að því að skapa persónurnar í bókinni? „Þær koma til mín eftir mjög undarlegum og óvæntum leiðum. Leigumorðingjann Toxic hitti ég á hótelherbergi í Berlín vorið 2006. Ég bar farangurinn inn hótelganginn, opnaði hurðina að herberginu mínu og eftir tvær mínútur þar inni var persónan alsköpuð, með nafni, starfsheiti og öllu. Kannski hafði hann gist í herberginu nóttina áður, hver veit?" „Hinar persónurnar urðu svo til eftir því sem sögunni vatt fram. Og sumar þeirra eiga sér reyndar fyrirmyndir í íslenskum raunveruleika," svarar Hallgrímur. Hvernig tilfinning er að skila inn kláruðu handriti? „Það er alltaf góð tilfinning, en örþreytt reyndar líka. Maður er alltaf svo útkeyrður að maður getur ekkert verið að hoppa af gleði. Þess vegna held ég aldrei útgáfupartí." „Ég skrifaði þessa sögu á tveimur tungumálum. Ensku og íslensku. Allt í allt tók það tvö og hálft ár. Og var auðvitað viss geðveiki. Undir lokin var athyglin þó öll á íslensku útgáfunni. Enska versjónin er ekki alveg fullkláruð ennþá. Ég hef ennþá smá tíma til að vinna í henni."Kostir og gallar að vera rithöfundur? Kostirnir eru ótal margir. Það er til dæmis alltaf gaman að eignast nýja lesendur. Gallarnir eru hinsvegar nær engir. Kannski helst þeir að maður þarf alltaf að þola sömu gagnrýnendur," segir Hallgrímur að lokum. Sjá umsagnir um bók Hallgríms hér.
Mest lesið Fólk eigi ekki að vera feimið við sleipiefnið Heilsa „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Bíó og sjónvarp Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Melabúðin fagnar sjötíu árum Lífið Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Sjá meira