Byssusala góð í New Orleans í aðdraganda fellibyls 1. september 2008 12:04
Stöðug og þétt umferð er nú á öllum götum út úr bandarísku stórborginni New Orleans, þar sem spáð er að fellibylurinn Gústaf taki land eftir nokkra klukkutíma. Byssusalar hafa haft nóg að gera við að selja þeim byssur sem ætla að verja heimili sín fyrir þjófum. Og á Kúbu eru menn nú að meta skemmdirnar eftir að fellibylurinn fór þar yfir um helgina. Fellibylurinn skildi eftir sig slóð eyðileggingar á vestanverðri Kúbu í gær. Þar þurftu 250 þúsund manns að leita sér skjóls í neyðarskýlum. Á meðan gekk veðurhamurinn yfir, reif upp tré og rústaði húsum. Meðal þess sem eyðilagðist voru þurrkhús fyrir tóbakslauf, sem er ein helsta útflutningsafurð Kúbverja. Nú stefnir bylurinn beina leið að Louisiana í Bandaríkjunum og allt bendir til að stórborgin New Orleans verði fyrir honum um klukkan fimm síðdegis að íslenskum tíma í dag. Þegar Katrín fór yfir fyrir þremur árum létust um átján hundruð manns. Nú er undirbúningurinn mun meiri og betri. Borgarstjórinn fyrirskipaði rýmingu borgarinnar um helgina og hótaði að láta handtaka alla þá sem óhlýðnuðust. Samt sem áður bendir sala á byssum undanfarna daga til þess að einhverjir ætli að vera eftir að verja heimili sín fyrir þjófum. Repúblikanar ætla að draga úr fyrirhuguðum gleðilátum á landsfundi sínum, sem þykja ekki við hæfi. Bush forseti fer ekki á landsfundinn heldur ætlar hann að ávarpa fundinn um gervihnött. Hann veit sem er að margir muna vel eftir skipulagsleysinu og seinum viðbrögðum bæði hans og undirmanna hans þegar Katrín gekk yfir fyrir þremur árum.
Mest lesið Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Erlent „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Innlent Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Innlent Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Innlent „Það átti að taka mig í karphúsið“ Innlent Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Innlent Tugþúsundir mótmæltu ICE Erlent Selenskí undir miklum þrýstingi Innlent Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Erlent Fleiri fréttir „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka „Við getum gert það sem við viljum“ Viti ekki hvað er í samningi NATO sem semji ekki fyrir hönd Grænlands Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Sendi Evrópu tóninn: „Þú mótar ekki nýja heimsmynd með eintómum orðum“ Draumur Trumps um „Rivíeru Mið-Austurlanda“ lifir enn Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Drógu mann út á nærbuxunum sem hafði ekkert til saka unnið Trump kynnti friðarráðið Sýknaður af ásökunum um aðgerðaleysi þegar nítján börn dóu Rutte samdi ekki við Trump fyrir hönd danska konungsríkisins Handtóku fimm ára dreng og föður hans og sendu til Texas Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands „Ramma framtíðarsamkomulags“ náð um Grænland og hætt við tolla Var á ráðstefnunni í Davos: „Fólk andaði kannski aðeins léttar“ X fyllist af gríni um Ísland/Grænland Þessi hönd er um sjötíu þúsund ára gömul Verði að eignast þetta „stóra fallega stykki af ís“ Sjá meira