Tvö hundruð þúsund heimilislaus á Kúbu eftir tvo fellibylji 16. september 2008 22:55 Götur á Kúbu eru sums staðar umflotnar vatni eftir yfirreið Ikes í síðustu viku en slíkt er ekki öllum á móti skapi, til að mynda ekki þessum dreng. MYND/AP
Tvö hundruð þúsund manns hið minnsta eru heimilislausir á Kúbu eftir yfirreið fellibyljanna Gústafs og Ikes á síðustu vikum. Stjórnvöld þar í landi segja tjónið í byljunum tveimur það mesta í sögu landsins. Bráðabirgðaskýrsla stjórnvalda um tjónið var kynnt í kúbversku sjónvarpi í gærkvöld. Þar kom fram að tjónið nemur yfir 800 milljörðum króna og hefur áhrif á 450 þúsund manns. Sem fyrr segir hafa 200 þúsund misst heimili sín og þá eyðilögðust um 340 þúsund hektarar af sykurreyr í ofsaveðrunum tveimur. Þykir ljóst að vegna tjónsins geti það reynst nýjum forseta, Raul Castro, erfitt að bæta lífsskilyrðin á eyjunni á næstunni. Ýmsir innviðir samfélagsins urðu illa úti í byljunum, þar á meðal vegir, raflínur, skólar og spítalar, og búist er við að uppbyggingarstarf taki mörg ár. Bandaríkjamenn hafa boðið Kúverjum aðstoð sína en því hafa Kúbverjar hafnað og segjast ekki munu þiggja gjafir frá nágrönnunum á meðan þeir beiti þá viðskiptabanni. Stjórnvöld í Kúbu höfðu farið fram á það að viðskiptabanni Bandaríkjanna yrði aflétt í hálft ár svo Kúbverjar gætu keypt ýmsan varning til uppbyggingar en á það féllust Bandaríkjamenn ekki. Kúbverjar hafa þó ákveðið að þiggja aðstoð frá Rússum, Spánverjum og Brasilíumönnum og hafa flugvélar frá þessum löndum lent á eynni með hjálpargögn. Þá er von á að Hugo Chavez, forseti Venesúela, komi skoðanabræðrum sínum á Kúbu til aðstoðar.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Fleiri fréttir Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Sjá meira