Erlent

Miklir skógreldar við Los Angeles - 12.000 flýja heimili sín

Miklir skógareldar geysa nú í nágrenni Los Angeles í Kaliforníu. Tveir hafa látist og 12.000 manns hafa flúið heimili sín vegna eldanna

Um það bil eitt þúsund slökkviliðsmenn barjast nú við eldanna en þeir hafa breiðst út í tveimur sýslum í San Fernando dalnum norður af Los Angeles. Arnold Schwarzenegger ríkisstjóri Kaliforníu hefur lýst yfir neyðarástandi í báðum sýslunum.

Samkvæmt nýjustu fréttum eru hundruðir heimila nú í hættu á að verða eldinum að bráð. Miklir og mjög þurrir vindar á svæðinu gera allt slökkvistarf mjög erfitt því vindáttin breystist stöðugt. Sökum þess hefur íbúum á svæðum í kringum sýslurnar verið sagt að vera á varðbergi, eldsvoðinn geti stefnt til þeirra hvenær sem er. Eldurinn breiðist svo hratt út að fólki gæti lent í vandræðum með að hlaupa undan honum.

Nú þegar hefur eldurinn eyðilagt um 5.000 hektara af skóg- og kjarrlendi á þessum slóðum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×