Ný gegnumlýsingartæki á flugvöllum umdeild Atli Steinn Guðmundsson skrifar 22. október 2008 12:23 MYND/AFP/Getty Images
Nýju gegnumlýsingartækin sem ráðgert er að taka í notkun við vopnaleit á flugvöllum innan Evrópusambandsins hafa vakið nokkurn úlfaþyt og er það nú til skoðunar hvort þau brjóti hugsanlega í bága við reglur um friðhelgi einkalífsins. Nýju tækin gera vopnaleitarfólki flugvallanna kleift að sjá í gegnum fatnað farþeganna og framkvæma þannig í raun líkamsleit án þess að afklæða þá eins og gert er við hefðbundna líkamsleit. Gagnrýnendur nýju tækjanna kalla þau sýndarlíkamsleit (e. virtual strip search) og segja þau innrás í einkalíf flugfarþega. Tækin skuli eingöngu nota þegar fyrir liggi rökstuddur grunur um að viðkomandi hafi eitthvað falið innanklæða, rétt eins og þegar hefðbundinni líkamsleit er beitt. Tækin hafa þegar verið tekin í notkun á nokkrum bandarískum flugvöllum auk breskra flugvalla og Schiphol-flugvallarins í Amsterdam. Embættismenn segja hins vegar að til þess geti komið að nýju gegnumlýsingartækin verði bönnuð taki ESB þau ekki inn í nýja reglugerð um leyfilegan öryggisbúnað á flugvöllum innan sambandsins.
Mest lesið Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Innlent „Níð“ Kjartans og Mörtu gæti sett strik í reikninginn Innlent „Ferðin á þessum bíl var alveg svakaleg“ Innlent „Ökufanturinn“ piltur undir tvítugu Innlent Missti af tíma hjá lækni vegna umferðarteppu Innlent Látinn eyða myndskeiði: „Ekki standa þarna eins og gungur, hjálpið manninum“ Innlent Árni Tómas Ragnarsson er látinn Innlent Mældur á 200 kílómetra hraða á klukkustund Innlent Guðmundur Árni hættir í pólitík: „Ég er enginn moðsuðumaður“ Innlent Kosningavaktin: Sjálfstæðisflokkurinn fagnaði um allt land Innlent Fleiri fréttir Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Ósáttir við kröfur Trumps: „Grænlendingar eru ekki til sölu“ Táningar skutu þrjá fyrir utan mosku í San Diego Sex kafarar látnir á Maldíveyjum Sótthreinsað hantaveiruskip væntanlegt til Íslands Lýsa yfir neyðarástandi vegna ebólufaraldursins Lammy segir ekkert fararsnið á Starmer Mesti fjöldi aftaka á heimsvísu í 44 ár Segir Taívani ekki vilja átök en þeir muni ekki gefa eftir „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Streeting vill formannsstólinn og aftur inn í Evrópusambandið Bíl ekið á hóp manna í Modena Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Stefnir í enn ein réttarhöldin gegn Weinstein Nýr ebólufaraldur í Austur-Kongó Trump um Xi og Taívan: „Hann vill ekki sjá baráttu um sjálfstæði“ Engir flökkudrónar fundist í Finnlandi Fólki sagt að halda sig inni vegna óþekkts dróna við Helsinki Segir fimm milljóna punda gjöf „verðlaun“ fyrir Brexit Saka tóbaksfyrirtæki um að halda nikótínpúðum að börnum Hrópuðu „megi þorp ykkar brenna“ og „Gasa er grafreitur“ Streeting segir af sér úr ríkisstjórn Starmer Varaði Trump við átökum vegna Taívan Sakfellingu Murdaughs snúið við og stefnir í ný réttarhöld Úkraínskir drónaflugmenn „rústuðu“ Svíum Hafa lofað Pútín að ná Donbas í sumar Streeting sagður munu skora Starmer á hólm í vikunni Trump fer til Kína: „Við erum tvö stórveldi“ Skaut á bíla af handahófi með riffli Sjá meira