Veita aðskilnaðarhéruðum í Georgíu fullan stuðning 14. ágúst 2008 12:37
Rússar ætla að veita aðskilnaðarhéruðunum í Georgíu fullan stuðning í væntanlegum viðræðum um framtíð þeirra. Dmitry Medvedev Rússlandsforseti sagði þetta í morgun eftir fund með foringjum uppreisnarmanna í héruðunum tveimur. Þessari ákvörðun verður áreiðanlega ekki vel tekið í Washington sem hefur heitið Georgíu stuðningi. Á meðan Medvedev sat á fundi með uppreisnarforingjunum frá Suður Ossetíu og Abkasíu var verið að ljúka við að aflesta bandaríska herflugvél sem lenti í gærkvöld hlaðin hjálpargögnum í Tblisi í Georgíu. Þetta var fyrsta vélin af mörgum sem Bandaríkjastjórn hefur heitið að senda þangað austur til að sýna stuðning sinn við Georgíu í verki þar með talinn stuðning við óbreytt landamæri ríkisins. Rússar hafa nú hafið brottflutning herja sinna og eru farnir að afhenda heimamönnum yfirráð yfir borginni Gori og nágrannasveitunum. Rússneskur hershöfðingi þar sagði fréttamönnum í morgun að hersveitir hans myndu engu að síður verða um kyrrt í nokkra daga til að hreinsa burt vopnabúnað sem liggur þar eins og hráviði um allt og til að koma á lögum og reglu, eins og hann orðaði það. Það er augljóslega ekki orðið enn því fréttamaður BBC sagðist í morgun heyra sprengingar í hæðunum umhverfis borgina. Rússar hertóku Gori um tíma fyrr í vikunni og leiddi það til mikils flótta georgískra hermanna og óbreyttra borgara í gær. Í borginni Zugdidi í vesturhluta Georgíu var þó enn fjölmennt rússneskt herlið í gærkvöld - en virtist vera að tygja sig til brottfarar. Zugdidi er skammt frá landamærunum að Abkhazíu þar sem uppreisnarmenn hafa haldið uppi skotárásum á Georgíumenn. Skilaboð Rússa til umheimsins eru því alveg skýr: þrátt fyrir vopnahléð og bandarískar herflugvélar sem lenda með hjálpargögn þá eru Rússar enn húsbændur á stórum svæðum í Georgíu og hersveitir þeirra eru ekki lengra frá Tblisi en svo að georgíska höfuðborgin er í auðveldu skotfæri.
Mest lesið Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð Innlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Fagnað á götum Kabúl Erlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent Fleiri fréttir Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Sjá meira