Innlent

Vissi ekki af tilboði breskra yfirvalda varðandi Icesave

Forsætisráðherra og Seðlabankinn segjast ekki hafa vitað af tilboði breskra fjármálayfirvalda um að færa Icesave reikninga undir breska ábyrgð með hraði. Forsætisráðherra segist ekki hafa vitað um tvö hundruð milljarða punda lánaósk Landsbankans því til tryggingar. Björgólfur Thor Björgólfsson segir bæði forsætisráðherra og Seðlabankann hafa vitað af þessu og fara því með rangt mál.

Í viðtali við Kompás segir Björgólfur Thor að Seðlabanki Íslands hefði getað afstýrt óvissunni sem ríki um Icesave reikninga í Bretlandi og milliríkjadeilunni við Breta með tvö hundruð milljóna punda láni. Þá hefði Icesave verið fært undir breska ábyrgð á fimm dögum.

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, segir að lengi hafi verið þrýst á Landsbankann að færa Icesave reikninga sína í dótturfélag og þannig undir breska ábyrgð.

Geir segir fráleitt að gera að því skónna að íslensk stjórnvöld eða Seðlabankinn hafi reynt að standa í vegu fyrir því að þetta gerðist eða trufla það ferli.

,,Ég þekki ekki þetta nákvæmlega með þessi 200 milljón pund. Hef ekki upplýsingar um það."

Seðlabankastjórar vildu ekki koma í viðtal vegna málsins í dag en bankinn gerir athugasemdir í bréfi. Þar segir að bréf frá Landsbankanum mánudaginn sjötta október hafi verið óskað eftir 200 milljóna punda fyrirgreiðslu Seðlabankans vegna útstreymis í útibúi þeirra í Bretlandi auk 53 milljóna punda láns vegna dótturfélags Landsbankans í Lundúnum. Í samtölum við forsvarsmenn bankans hafi ekki komið fram að þó umbeðin fjárhæð fengist væri óvíst hvort hún dygði og fjárþörfin gæti hækkað. Ekki hafi verið minnst á flýtiafgreiðslu breska fjármálaeftirlitsins. Því sé fullyrðing Björgólfs Thors að 200 milljóna punda fyrirgreiðsla dygði til að leysa allan vanda Landsbankans standist ekki. Einnig sé frásögn hans að rás atburða röng.

Í yfirlýsingu Björgólf Thors sem barst skömmu fyrir fréttir segir að hann standi við orð sín í sjónvarpsþættinum Kompás. Hann segir Seðlabankann svara með hálfkveðnum vísum og aðdróttunum.








Tengdar fréttir

Seðlabanki svarar ekki fullyrðingum Björgólfs Thors

Engin svör fást í Seðlabankanum við fullyrðingum Björgólfs Thors Björgólfssonar um að bankinn hefði getað afstýrt óvissunni með Icesavereikninganna og milliríkjadeilunni sem hún hefur skapað.

Björgólfur Thor: Seðlabankinn svarar með hálfkveðnum vísum og aðdróttunum

Bankastjórum Seðlabankans var kunnugt um boð breska fjármálaeftirlitsins um flýtimeðferð, segir Björgólfur Thor Björgólfsson í yfirlýsingu. Hann hefur sagt að bresk yfirvöld hafi boðist til að taka yfir alla Icesave-reikninga degi áður en neyðarlögin voru sett. Það var þó gegn því að Landsbankinn greiddi 200 milljónir punda, eða því sem nemur um 37 milljörðum króna, sem tryggingu.

Segja Björgólf Thor fara með rangt mál

Í bréfi til bankastjórnar Seðlabanka Íslands mánudaginn 6. október sl. kynnti bankastjórn Landsbanka Íslands að bankinn þyrfti fyrirgreiðslu að fjárhæð 200 milljónir punda frá Seðlabanka Íslands vegna útstreymis sem orðið hefði í útibúi þeirra í Bretlandi auk 53 milljóna punda láns vegna dótturfélags Landsbankans í Lundúnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×