Ferðalesari greinir fingraför breskra sakamanna Atli Steinn Guðmundsson skrifar 27. október 2008 14:29 Þetta tiltekna fingrafar tengist fréttinni ekki beint. MYND/Fingerprintusa.com
Bresk lögregla verður að öllum líkindum innan skamms búin ferðafingrafaralesurum til að ganga úr skugga um persónu þeirra sem hún hefur afskipti af. Um er að ræða tilraunaverkefni sem gengur undir heitinu MIDAS (The Mobile Identification At Scene sem ef til vill mætti þýða sem hreyfanlega vettvangskennslarann) og er gert ráð fyrir að mestallt lögreglulið Englands verði búið þessum grip innan 18 mánaða reynist tilraunin vel. Geoff Whitaker hjá starfsþróunarstöð lögreglunnar (National Policing Improvement Agency (NPIA)) segir þann tíma sem fer í að taka fingrafarasýni af viðskiptavinum lögreglu vera að meðaltali 67 mínútur í hvert skipti. Hann segir þann tíma reiknaðan yfir í launakostnað jafngilda 366 stöðugildum lögregluþjóna svo sparnaðurinn hljóti að teljast umtalsverður. Whitaker segir tækið ekki eingöngu nýtast við hefðbundin lögreglustörf heldur megi beita því við landamæraeftirlit og til að kanna bakgrunn gesta á íþróttaviðburðum og tónleikum. Ferðalesarinn greinir fingrafar viðkomandi á staðnum, eins og nafnið gefur til kynna, og ber saman við gagnagrunn lögreglunnar sem geymir upplýsingar um 7,5 milljónir sakamanna ásamt fingrafarasýni. Mannréttindafrömuðir hafa að sjálfsögðu skoðanir á þessari innrás í einkalíf almennings og hafa mannréttindasamtökin Liberty sent frá sér yfirlýsingu þar sem meðal annars kemur fram að gera megi þá lágmarkskröfu að lögregla eyði samstundis þeim gögnum sem safnað er á þennan hátt eftir notkun þeirra. Lögreglan segist ekki sjá neina meinbugi á því að svo verði.
Mest lesið Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina Innlent Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Erlent „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Innlent „Klukkan tifar“ Innlent Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Innlent Fleiri fréttir Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Sjá meira