Erlent

Heldur áfram að lána sjálfri sér

Hillary Rodham Clinton.
Hillary Rodham Clinton.

Hillary Clinton, fyrrverandi frambjóðandi í forvali Demókrataflokksins í Bandaríkjunum, heldur áfram að lána kosningabaráttu sinni fé. Nú seinast jafnvirði 80 milljóna íslenskra króna.

Í byrjun júní lýsti Hillary yfir ósigri sínum í forkosningumnum og í framhaldinu kvaðst hún styðja Barak Obama. Hún hvatti alla demókrata til að standa að baki honum í komandi baráttu um forsetaembætti Bandaríkjanna.

Þrátt fyrir að einn og hálfur mánuður sé liðinn hafa skuldirnar haldið áfram að aukast og Hillary þurft að lána sjálfri sér fé. Heildarupphæðin er nú tæplega milljarður íslenskra króna.

Í júní söfnuðust rúmlega 200 milljónir en aftur á móti voru útgjöldin tæpar 600 milljónir sem skýrist meðal annars af launakostnaði starfsliðs kosningabaráttunnar.

Barak Obama styrkti sjálfur kosningasjóð Hillary um 200 þúsund krónur i júní.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×