Vill styttri opnunartíma og dreifðari staði til þess draga úr afbrotum 20. nóvember 2008 16:59 MYND/Vilhelm
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu telur að með því að fækka skemmtistöðum í miðborginni, stytta opnunartíma, dreifa veitingastöðum meira um borgina og færa skemmtistaði af tiltekinni tegund í iðnaðarhverfi megi draga úr afbrotum í miðborginni og raunar öllu höfuðborgarsvæðinu. Einnig megi með þessu fækka kvörtunum íbúa vegna hávaða og næðis. Þetta kemur fram í bréfi hans til borgarstjóra sem lagt var fram á borgarráðsfundi í dag. Borgarstjóri kallaði eftir upplýsingum frá lögreglustjóranum í október um þróun ofbeldisbrota og annarra brota í miðborginni frá því að áfengisveitingatíminn var rýmkaður árið 1999. Afbrotum fjölgaði í fyrra Fram kemur í bréfi lögreglustjórans að samkvæmt tölum lögreglunnar hafi tíðni ofbeldisbrota, fíkniefnabrota, auðgunarbrota, eignaspjalla, nytjastulda og kynferðisbrota í miðborginni aukist árið 2007 í samanburði við meðaltal áranna 2004-2006. Þá hefur tilkynningum vegna hávaða fjölgað á síðustu árum. Lögreglustjórinn bendir á að miðborgin skeri sig úr varðandi afbrotatíðni á höfuðborgarsvæðinu en rúmlega þriðjungur brota eigi sér stað þar. Þau afbrot séu að stórum hluta bundin við ákveðinn tíma „en samkvæmt tölum lögeglu aukast ofbeldisbrot, áfengislagabrot og kvartanir vegna hávaða verulega að næturlagi um helgar. Mikill meirihluti brota og verkefna lögreglu í miðborginni er á tímabilinu frá miðnætti til klukkan sex að morgni um helgar í nágrenni við eða inni á vínveitingastöðum," segir í bréfi lögreglustjóra. Þá bendir hann á að tveir af hverjum þremur finni fyrir óöryggi þegar þeir ganga einir í miðborginni að næturlagi um helgar samkvæmt könnunum. Þarf skýra stefnu um mannlíf í miðborginni Segir lögreglustjóri að borgaryfirvöld þurfi að marka sér skýra stefnu um mannlíf í miðborg Reykjavíkur. Þar skuli skilgreina hvar skemmistaðir skuli vera staðsettir, hversu nálægt skemmtistaðir af tiltekinni tegund og með rúman opnunartíma megi vera íbúðabyggð, hvernig opnunartíma eigi almennt að vera háttað og hvaða kröfur eigi að gera um öryggi á og við staðina. „Meiri dreifing skemmtistaða í höfuðborginni með tilheyrandi sveigjanlegum opnunartíma og fækkun skemmistaða í miðborginni og breyting á opnunartíma þeirra eru allt nauðsynlegar aðgerðir til að takast á við þann vanda sem við er að etja í miðborginni. Vinna þarf að þeim breytingum með því m.a. að bjóða upp á rýmri opnunartíma skemmistaða á svæðum sem eru æskilegri til slíks skemmtanahalds. Er þá átt við iðnaðar- og þjónustusvæði sem eru víðs vegar í höfðuborginni," segir lögreglustjóri. Segir lögreglustjóri að embætti hans sé reiðubúið að koma að frekari vinnslu hugmynda og aðstæða við útfærslu þeirra auk þess sem embættið muni áfram fylgjast með þróun mála.
Mest lesið Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Erlent Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Erlent Borgarbúar fá annan góðviðrisdag Veður Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Innlent Níu gistu fangageymslur í nótt Innlent Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Erlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Fleiri fréttir Deilt um ESB og Sólveig Anna ræðir útlendingafrumvarp Níu gistu fangageymslur í nótt Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Vond staða Úkraínu, furðukenning um geimverur og Gleðigangan Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Sjá meira