Búist við sigri Hun Sen í Kambódíu 27. júlí 2008 12:30
Þingkosningar voru í Kambódíu í dag og er fastlega búist við ótvíræðum sigri Huns Sens, forsætisráðherra sem hefur verið við völd lengur en nokkur annar þjóðarleiðtogi í Asíu - eða allt síðan hann sagði skilið við Rauðu Khmerana á sínum tíma og var settur til valda af Víetnömum 1985. Hun Sen hefur orð á sér fyrir að vera hörkutól sem ekki líður andstöðu. Helsti stjórnarandstæðingurinn í landinu, Sam Rainsy, segir að þúsundir stuðningsmanna sinna í höfuðborginni Phnom Penh hafi verið þurrkaðir út af kjörskrám. Kjörstöðum var lokað í morgun, að íslenskum tíma, og er reiknað með úrslitum á næstu sólarhringum. Kosningarnar í Kambódíu voru haldnar í skugga spennu á landamærunum við Thailand þar sem hermenn beggja ríkjanna standa gráir fyrir járnum við Búddahof frá elleftu öld. Þjóðernistilfinningar hafa risið hátt í báðum löndunum - sem hefur ekki dregið úr stuðningi almennings við Hun Sen. Thailands megin landamæranna eru það einkum andstæðingar stjórnarinnar í Bangkok sem vilja gæta sóma og hagsmuna þjóðar sinnar og um leið eru þeir að sýna andstöðu við Bangkok-stjórnina sem studdi viðleitni Kambódíumanna til að fá hofið sett á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna. Hofið stendur á rúmlega fjögrra ferkílómetra svæði sem hefur verið umdeilt allt síðan franska nýlendustjórnin fór frá Kambódíu skömmu eftir 1950. Kambódíumenn hafa leitað liðsinnis Sameinuðu þjóðanna við lausn Búddahofs-deilunnar - en Thailendingar vilja leysa málið í beinum viðræðum.
Mest lesið Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Innlent Fagnað á götum Kabúl Erlent Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Erlent „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Erlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Mundaði stólinn og lamdi gesti Innlent Fleiri fréttir Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Sjá meira