Talíbanar að sigra í áróðursstríðinu 27. júlí 2008 09:45
Talíbanar í Afghanistan eru að sigra Vesturlönd - í áróðursstríðinu. Svo segir virt rannsóknarstofnun sem einnig bendir á að Talíbanar nýti vandlega reiði almennings yfir of tíðum árásum sem leiði til dauða óbreyttra borgara. Það er rannsóknarstofnunin International Crisis Group sem hefur komist að þessari niðurstöðu eftir ítarlegar athuganir. Þessi stofnun hefur starfað um langt árabil og nýtur mikillar virðingar víða um heim. Stofnunin ráðleggur afgönsku ríkisstjórninni að gera meira til að vekja athygli á hroðaverkum Talíbana og takast á sama tíma á við spillinguna sem einkennir stjórn Hamids Kharzai. Í nýrri skýrslu um ástandið í Afghanistan segir Crisis Group að þótt Talíbanar ráði engu landi og hafi engin völd, þá hafi hreyfing þeirra haft lag á að virðast bæði stærri og sterkari en hún raunverulega sé. Með úthugsaðri fjölmiðlastefnu, bæði heima og heiman, hafi Talíbönum tekist að spila á þjóðernisást margra Afghana og opinbera margskonar stefnuleysi Kabúl-stjórnarinnar og stuðningsmanna hennar erlendis. Afleiðingin er sú, segir í skýrslu Crisis Group, að jafnvel þótt beinir stuðningsmenn Talíbana séu fáir, þá takist þeim að draga úr stuðningi við stjórnina. Sífellt dýpkandi gjá er á milli stjórnarinnar og almennings, segir í skýrslunni. Í skýrslunni er fullyrt að Kabúl-stjórninni og stuðningsmönnum hennar, það er að segja NATO hernum, muni ekki takast að vinna hernaðarsigur á Talíbönum og því sé lífsnauðsynlegt að sigrast á hugmyndafræði þeirra og ímynd. Til að gera það þurfa Kabúl-stjórnin og alþjóðasamfélagið að beina kastljósinu að grimmd Talíbana og takast af alvöru á við þau þjóðfélagsmein sem þeir noti sér til framdráttar.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Tvær þyrlur sendar og hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs slyss Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Sjá meira