Hungursneyð í Afríku 27. júlí 2008 18:30
Hungursneyð er yfirvofandi á gríðarstóru svæði í austanverðri Afríku. Matvælahjálp Sameinuðu þjóðanna segir að hátt í fimmtán milljónir manna þurfi aðstoðar við eigi ekki að koma til stórkostlegra hörmunga. Loftslagsbreytingar eru daglegur veruleiki í austanverðri Afríku þar sem úrkoma undanfarin ár hefur verið minni og-eða óstöðugri en vant er til og þurrkar meiri - og á öðrum tímum - en fólk hefur vanist. Fátækt er þar landlæg, sem og vopnuð átök og dýrasjúkdómar - og nú hefur verðbólga, hátt olíuverð og ónógur matur bæst við. Hinir verst stöddu eru ekki lengur aðeins fólk í sveitum, heldur einnig milljónir manna í þéttbýli, að því er talsmaður Matvælahjálpar Sameinuðu þjóðanna sagði fréttamönnum í Nairobi fyrir helgina. Um tuttugu milljónir manna búa í fátækrahverfum í löndunum í austanverðri Afríku - allt frá Eritreu og Sómalíu vestur til Uganda og suður til Tanzaníu. Þetta fólk horfist nú í augu við hungurvofuna sem aldrei fyrr vegna þeirrar efnahagskreppu sem gengur yfir heiminn. Víða hefur verð á matvælum hækkað um 30-50%, eins og í Kenya - og þar bætist við að ólgan í kjölfar forsetakosninganna um áramótin dró talsvert úr landbúnaðarframleiðslu. Sameinuðu þjóðirnar fara nú fram á rúmlega 400 milljónir Bandaríkjadala, eða andvirði liðlega þrjátíu milljarða króna, til að bregðast við þeim vanda sem við blasir. Þetta er til viðbótar við það fé sem þegar er varið til að fæða hungrað fólk á svæðinu. Þær fjórtán til fimmtán milljónir manna sem þurfa matvælaaðstoð á næstu mánuðum eru í Eþíópíu, í Sómalíu, í Kenya, Uganda, Eritreu og Djibouti. Ekki er ólíklegt að suðurhluti Súdans bætist í þennan hóp, - og ef taka má mið af ástandinu 2006, þá gæti það sama gilt um Tanzaníu, Burundi og Rúanda.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Tvær þyrlur sendar og hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs slyss Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Sjá meira