Erfiðleikar ekki meiri en á fyrri tímum 1. október 2008 14:13
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sagði við þingsetningu Alþingis í dag að vandamálin nú væru ekki meiri nú á fyrri tímum þegar Íslendingar börðust fyrir sjálfstæði og útfærslu landhelginnar. Þá sagði að erfiðleikarnir gæfu hvorki tilefni til uppgjafar né örþrifaráða. „Þvert á móti er þjóðin nú ríkulega búin að auðlindum, fjölþættri menntun og margþættri reynslu, nýtur velvildar hjá öllum ríkjum," sagði forsetinn. Forsetinn gerði fullveldisbaráttuna að umtalsefni sínu í ræðu sinni á þingsetningu en 1. desember eru 90 ár frá því að Ísland varð fullvalda ríki. Hann sagði að baráttan hefði verið hörð. „Hollt er nú þegar við siglum um úfinn sjó, öldurót er í efnahagsmálum, bæði hér heima og erlendis, að sækja lærdóma í baráttuna fyrir þeim sigrum í sögu landsins sem reynst hafa einna stærstir, lærdóma sem eru vegvísar um að víðsýni og stjórnviska leiða jafnan tilfarsælla lausna þegar þjóðin öll er samferða forystumönnum, þegar vissan um réttlæti og góðan málstað er í hávegum höfð," sagði Ólafur Ragnar. Þá rifjaði hann upp hversu stór stund það hefði verið fyrir Íslendinga að öðlast fullveldi og vísaði til frásagna af atburðunum 1918. Vitnaði hann til ritstjórnargreinar Morgunblaðsins við það tilefni. Þar stóð: „Í dag fá Íslendingar það hlutverk, að halda uppi sæmd yngsta ríkisins í heiminum. Og vonandi finnur öll þjóðin til vandans, sem þeirri vegsemd fylgir, til ábyrgðarhlutans, sem fallinn er oss í skaut með sambandslögunum nýju. Það er eigi minna um vert, að kunna að gæta fengins fjár en að afla þess. Og því er það, að svo áríðandi og mikilsvert sem oss hefir verið starf vitrustu og bestu manna þjóðarinnar í baráttunni fyrir réttinum, þá er hitt eigi síður vandi, að gæta réttarins. Aldrei hefir þjóðinni fremur en nú riðið á að eiga vitra menn og góða til þess, að verja lífi sínu og orku í þágu þjóðar sinnar." Forsetinn spurði hvort Íslendingar hefðu efni á glata slíkum dögum og hét á Alþingi að færa þjóðinni 1. desember á ný. „Oft var þörf en nú og á komandi tímum er brýn nauðsyn að við eignumst slíkan samræðuvettvang, umræðufarveg þar sem grunngildi Íslendinga kallast á við verkefni dagsins, vandamálin sem bíða lausnar. Ég heiti á Alþingi að taka nú forystu í þessum efnum, veita 1. desember þá virðingu sem honum ber og gera það í tæka tíð fyrir aldarafmæli fullveldisins 2018," sagði forsetinn. Enn fremur kom Ólafur Ragnar að því hvernig sigur hefði unnist í landhelgisbaráttunni. „Án ákvarðana Alþingis hefði landhelgisbaráttunni aldrei verið ýtt úr vör. Sigrarnir sem unnust voru í senn Alþingis og þjóðarinnar. Það er því líkt og með 1. desember einkum hlutverk Alþingis að tryggja að hin merka saga um útfærslu landhelginnar, þekkingin á þeim tímabilum sem við nefnum landhelgisstríðin, verði þjóðinni ávallt nákomin, að um alla framtíð sæki kynslóðir vísdóm og kraft í lýsingar á þessum örlagatímum hins íslenska lýðveldis," sagði forsetinn. Þá sagði hann að sagan kenndi mönnum að djúpstæð vissa um að réttlæti „og hagur allra, sanngirni og samstaða séu höfð að leiðarljósi, að lýðræðisleg umfjöllun og aðhald ráði för, hafa verið og verða ávallt forsendur þess að gagnkvæmt traust myndist milli þings og þjóðar og landsmenn skipi sér að baki stefnunni sem hér er mótuð," sagði forsetinn. Þingsetningarathöfnin hófst klukkan hálftvö með guðsþjónustu í Dómkirkjunni þar sem séra Anna Sigríður Pálsdóttir dómkirkjuprestur predikaði og þjónaði fyrir altari ásamt biskupi Íslands, herra Karli Sigurbjörnssyni.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Leggjast gegn því að útivistartími 10 til tólf ára verði lengdur að vetri Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Fleiri fréttir Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Leggjast gegn því að útivistartími 10 til tólf ára verði lengdur að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Sjá meira