Lífið

Störe á pókermót í Portúgal

Egill gæti hugsanlega tekið við af Daniel Craig sem James Bond miðað við hvernig hann tekur sig út í sérsniðna smókingnum.fréttablaðið/Arnþór
Egill gæti hugsanlega tekið við af Daniel Craig sem James Bond miðað við hvernig hann tekur sig út í sérsniðna smókingnum.fréttablaðið/Arnþór
„Þetta er draumur sérhvers pókerspilara, ég er auðvitað byrjaður að æfa enda ætla ég að rúlla þessum köpppum upp," segir Egill „Störe" Einarsson. Einkaþjálfaranum kunna virðast allir vegir færir því hann er á leiðinni á risastórt alþjóðlegt mót í póker um miðjan febrúar.

Félagsskapurinn sem Egill verður í er ekki amalegur því góðvinur hans, Auðunn Blöndal, verður einnig meðal þátttakenda. Mótið sem um ræðir er haldið á einu stærsta spilavíti Evrópu, Estoril í Portúgal. Sagan segir að Ian Flemming, höfundur bókanna um James Bond, hafi dvalist þar og fengið hugmyndina að þessum þekktasta leyniþjónustumanni heims sem var ekkert síður lunkinn pókerspilari. Agli líst vel á að halda á slóðir James Bond enda eigi þeir ýmislegt sam­eiginlegt.

Ferðin er farin á vegum veðmálafyrirtækisins Betsson. Fyrirtækið hyggst jafnframt blása til mótaraðar á netinu nú í desember þar sem menn geta unnið sér sæti á glæsilegu pókermóti á skemmtistaðnum Rúbín í Öskjuhlíðinni þann 17. janúar. Sigurlaunin á því móti eru þó ekki peningaseðlar heldur þrír farseðlar með öllu á mótið í Portúgal að verðmæti fimmhundruð þúsund krónur.

Engar smáupphæðir eru í boði á mótinu en heildarverðlaunaféð er ein milljón dollara. Sú fjárhæð dreifist á efstu menn en sigurvegarinn fær að launum 236 þúsund dollara eða þrjátíu milljónir íslenskra króna. „Þetta er að fara í vasann hjá mér, ég er íþróttamaður með keppnisskap og ætla mér að sjálfsögðu að vinna þetta." Egill viðurkennir samt sem áður að fyrsta takmarkið sé að komast á lokaborðið þar sem níu spilara heyja lokabardaga um sigurlaunin. „Þá fer þetta auðvitað að snúast svolítið um að hafa heilladísirnar á sínu bandi eins og í öðrum íþróttagreinum," útskýrir pókerspilarinn.

Egill segist hafa stundað póker á þriðja ár. Hann viti varla um nokkrun mann sem ekki grípi í spil við og við. Hann er ekki í vafa um hvert sé hans sterkasta vopn. „Þolinmæði, já án gríns, ég er mjög þolinmóður við borðið og bíð eftir réttu tækifærunum. Og svo er ég með all svakalegt pókerfés, það er gjörsamlega ómögulegt að lesa mig." freyrgigja@frettabladid.is








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.