Borgarstjóri væntir mikils af samstarfinu við Hönnu Birnu 8. júní 2008 15:42
Ólafur F. Magnússon borgarstjóri væntir mikils og góðs af komandi samstarfi sínu við Hönnu Birnu Kristjánsdóttur oddvita Sjálfstæðisflokksins í borginni. "Ég hef þegar rætt við Hönnu Birnu og óskað henni til hamingju með að verða orðin oddviti Sjálfstæðismanna í borginni," segir Ólafur í samtali við Vísi. "Með þessum breytingum sem orðnar eru á ég von á að umræðan muni snúast á sveif með okkur og að verkum okkar og verkefnum verði gerð betri skil." Ólafur segir ennfremur að hann vilji þakka Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni fyrir góða og farsæla samvinnu þeirra í borgarmálum undanfarin 18 ár. "Ég hef einnig haft samband við Vilhjálm og óskaði honum til hamingju með stóran áfanga í lífi sínu, það er brúðkaup hans í dag," segir Ólafur. Hvað varðar lítið fylgi við hann og Sjálfstæðisflokkinn í skoðanakönnunum að undanförnu segir Ólafur að hann eigi nú von á breytingum þar á. "Ég hef aldrei unnið í könnum en aftur á móti nær alltaf í kosningum," segir hann. Hvað varðar nánustu framtíð samstarfs hans og Sjálfstæðismanna í borgarmálum vísar Ólafur til verkefnalista þeirra í málefnasamningum. "Við munum halda áfram á þeirri braut sem verið hefur með að vinna að þessum verkefnum og vil ég þar sérstaklega geta um þá vinnu sem lögð hefur verið í miðborg Reykjavíkur að undanförnu," segir Ólafur F. Magnússon.
Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Fleiri fréttir Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Sjá meira