Randver leikur John Cleese 9. desember 2008 09:00 Randver í hlutverki John Cleese og Frímann í hlutverki Hilmis Snæs.
Nú þegar Bretland virðist hafa unnið ímyndarstríðið við litla Ísland vegna Icesave-deilunnar fáum við Íslendingar góða hjálp. Sjálfur Frímann Gunnarsson, sem getið hefur sér gott orð í þáttunum Sigtið á Skjá einum, hefur sett fram hugmynd að ímyndarauglýsingu á bloggsíðu sinni (frimann.blog.is). „Það hefur verið æpandi þögn varðandi afstöðu Frímanns til bankafallsins og milliríkjadeilunnar við Bretland," segir Gunnar Hansson, sem þekkir Frímann betur en flestir. „Hann upplifir sig sem skilnaðarbarn í þessari deilu því þótt Frímann hafi alist upp á Ísland þá menntaði hann sig í Bretlandi. Þar varð hann að þeim heimsborgara sem hann er." Hugmynd Frímanns um ímyndarauglýsinguna er mjög metnaðarfull. Hann sér fyrir sér að John Cleese leiki breskan leigusala, Sir Winterbottom, sem réttir íslenskum námsmanni seðlabúnt þar sem námsmaðurinn (leikinn af Hilmi Snæ eða Ingvari E.) liggur bláfátækur í göturæsinu. Í hugmyndinni er Randver Þorláksson í hlutverki Cleese en Frímann leikur námsmanninn. „Verði auglýsingin gerð, vonast Frímann til að hún verði fyrsta skrefið í að leysa þessa erfiðu deilu. Hann vonar að mamma og pabbi taki saman aftur." Af Frímanni er það annars að frétta að hann fæst aðallega við ritstörf þessa dagana. „Bloggsíðan er hans vettvangur og þar mun hann birta ljóð og pistla á næstunni," segir Gunnar. „Svo var hann búinn að klára heila auglýsingaherferð fyrir Glitni. Herferðin var einmitt tilbúin föstudaginn áður en bankinn féll. Þar var hann með ýmsar ráðleggingar í fjármálum og var auðvitað eins og fíll í postu-línsbúð. Þetta voru drepfyndnar auglýsingar en þættu líklega hálf óviðeigandi núna. Kannski verða þær notaðar seinna." - drg
Mest lesið Svona verður röð laganna á laugardaginn Lífið Einhleypir þokkasveinar Lífið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Þessi tíu lög komust í úrslit Lífið Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Lífið Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Lífið Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið VÆB bræður á forsíðu BBC Lífið Fleiri fréttir Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Einhleypir þokkasveinar Svona verður röð laganna á laugardaginn Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Þessi tíu lög komust í úrslit VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sjá meira