Er glerið frá Kristalsnóttinni fundið ? Óli Tynes skrifar 28. október 2008 16:57 Yaron Svoray heldur á glerbroti með Davíðsstjörnunni. MYND/AP
Ísraelskur rannsóknarblaðamaður telur hugsanlegt að hann hafi fundið ruslahauginn þar sem glerið frá Kristalsnóttinni var urðað árið 1938. Kristalsnóttin var upphafið á ofsóknum nazista á hendur gyðingum. Kristalsnóttin stóð raunar í tvo sólarhringa, níunda og tíunda nóvember árið 1938. Það vantar því aðeins nokkra daga upp á að sjötíu ár séu liðin frá því þetta gerðist. Morð og misþyrmingar Stormsveitarmenn og æstir nazistar réðust þá á heimili, verslanir og bænahús gyðinga og auðvitað á þá sjálfa. Níutíu og tveir þeirra voru myrtir og milli 25 og 30 þúsund handteknir og sendir í fangabúðir. Ástæðan fyrir nafninu Kristalsnótt var sú að rúður voru brotnar í yfir 7500 verslunum gyðinga í Berlín og allt brotið og bramlað sem í þeim var. Fjögurhundruð bænahús voru brennd víðsvegar um landið. Þetta skildi náttúrlega eftir heilu fjöllin af glerbrotum sem þurfti að losna við. Margar Davíðs stjörnur Ísraelski rannsóknarblaðamaðurinn Yaron Svoray var að leita að flugvélarflaki frá stríðsárunum í hinu mikla skóglendi norður af Berlín. Íbúar á svæðinu bentu honum á gamlan ruslahaug sem hafði verið notaður undir sorp frá Berlín á árunum 1935-1945. Þar var óvenjumikið af gleri. Svoray þurfti ekki að grafa djúpt til þess að finna gler, og óvenju mikið af því var skreytt með Davíðs stjörnunni. Ísraelinn telur talsverðar líkur á að þetta gler sé frá Kristalsnóttinni, og vill láta rannsaka staðinn nánar. Refsað vegna nauðgana en ekki fyrir þær Þýskur fornleifafræðingur sem hefur eftirlit með niðurgröfnum fornminjum segist munu skoða málið. Engum var refsað fyrir atburði þessarar nætur nema stormsveitarmönnum sem nauðguðu gyðingakonum. Þeim var þó ekki refsað fyrir nauðganirnar heldur fyrir að brjóta Nuremberg lögin svokölluðu sem bönnuðu kynferðislegt samneyti aría og gyðinga.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira