Karadzic hlýddi á breytta ákæru gegn sér í Haag Atli Steinn Guðmundsson skrifar 28. október 2008 12:43 Radovan Karadzic. MYND/AP „
Slátrarinn frá Bosníu", Radovan Karadzic, kom fyrir stríðsglæpadómstólinn í Haag í morgun til að hlýða á breytingu sem gerð hefur verið á ákærunni gegn honum. Karadzic er ákærður fyrir stríðsglæpi og þjóðarmorð og er ákæran alls í 11 liðum. Karadzic var leiðtogi Bosníu-Serba í borgarastyrjöldinni 1992 - 1995 sem fylgdi í kjölfar aðskilnaðar Bosníu-Herzegóvínu frá þáverandi Júgóslavíu. Talið er að hermenn Karadzic hafi slátrað hundruðum þúsunda múslima og Króata þegar þjóðernishreinsanirnar svokölluðu stóðu yfir en Karadzic var þá forseti Serbneska lýðveldisins í Bosníu-Herzegóvínu. Um tíma var talið að 300.000 múslimar hefðu týnt lífi í stríðinu en nýlegar athuganir gefa til kynna að þeir hafi verið nær 100.000. Karadzic sást síðast opinberlega árið 1996. Hann er geðlæknir að mennt og fór, að sögn serbneskra yfirvalda, huldu höfði árum saman og stundaði lækningar undir fölsku nafni. Að Karadzic frátöldum er hershöfðinginn fyrrverandi, Ratko Mladic, náinn samverkamaður hans, talinn hættulegasti stríðsglæpamaður sem enn gengur laus og eru stjórnvöld í Serbíu hvött til að hafa hendur í hári hans, meðal annars af sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira