Pólsk brauð í bakaríum Myllunnar SB skrifar 10. júní 2008 12:07 Af heimasíðu Myllunnar. Slagorð fyrirtækisins er: Alltaf nýbakað.
Fyrrverandi bakari hjá Myllunni ljóstrar upp um starfsaðferðir fyrirtækisins. Hann segir meirihluta brauðsins í "Bakað á staðnum" í Hagkaupum flutt inn frá Póllandi; honum hafi verið sagt að ljúga þegar fólk spurði hvort bakkelsi væri bakað á staðnum. Myllan rekur bakaríið "Bakað á staðnum" í Hagkaupum. „Brauðin sem boðið er upp á í Haugkaupum eru flest flutt inn frá Póllandi,"segir Guðmundur H. Sigurðsson, menntaður bakari, sem hefur snúið baki við bransanum og vill nú segja sannleikann um starfshætti Myllunnar. „Þegar ég byrjaði hjá Myllunni 2001 voru um 25 bakarar við störf. Í dag starfa þar einir fjórir, fimm bakarar og 130 verkamenn." Vísir hefur undanfarna daga fjallað um þann nýja veruleika sem blasir við í bakaríum og stórmörkuðum landsins. Vinsælt bakkelsi eins og kleinuhringir, hnetuvínarbrauð og Berlínar bollur er flutt inn frosið frá Danmörku. „Ég laug. Ef fólk spurði hvar ákveðin vara væri bökuð var mér sagt að segja að hún væri frá Myllunni - bökuð á staðnum. Mér leið illa að segja: Já, þetta er framleitt inn í Myllu í staðinn fyrir sannleikann: Þetta er flutt inn frá Póllandi. Okkur var uppálagt að gera þetta," segir Guðmundur. Björn Jónsson, framkvæmdastjóri Markaðssviðs Myllunnar, segir tæknina hafa þróast þannig að minni þörf sé á menntuðum bökurum. „Tækin eru svo fullkomin að bökurum hefur fækkað," segir hann. Björn játar því að hluti brauðsins og sætabrauðsins sem Myllan bíður upp á í Hagkaupum komi frá útlöndum. „Framkvæmdastjóri Bakarameistarans hefur viðurkennt að flytja inn kleinuhringi í hagræðingaskyni. Menn verða að gera það sem er hagstæðast. Okkar stefna er að bjóða upp á sem best verð fyrir okkar viðskiptavini. Ef það hentar að flytja inn gerum við það." Björn segir jafnframt þá staðhæfingu Guðmundur að bökurum hefði verið sagt að upplýsa ekki um uppruna vörunnar fráleita. „Það er bara rangt," segir hann.
Tengdar fréttir Frosið brauð sagt bakað á staðnum Stórmarkaðurinn Krónan auglýsir brauð sem sé "bakað á staðnum". Deigið er hins vegar flutt til landsins frosið og forbakað og aðeins hitað upp í stórmörkuðunum. Framkvæmdastjóri Bakarameistarans segir bakstur lögverndaða iðn. 6. júní 2008 12:30 Bakarísstelpa stígur fram: Hnetuvínarbrauð afþídd í bakaríum „Bakkelsið kom næstum allt inn frosið og svo vorum við látin hita það upp," segir Heiðrún Backmann, fyrrverandi starfsmaður Bakarameistarans. Svo virðist sem bakaríin baki ekki bakkelsi á staðnum heldur láti afgreiðslustúlkur hita upp forbakaðar og frostnar vörur. 9. júní 2008 12:58 Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Fleiri fréttir Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Sjá meira
Frosið brauð sagt bakað á staðnum Stórmarkaðurinn Krónan auglýsir brauð sem sé "bakað á staðnum". Deigið er hins vegar flutt til landsins frosið og forbakað og aðeins hitað upp í stórmörkuðunum. Framkvæmdastjóri Bakarameistarans segir bakstur lögverndaða iðn. 6. júní 2008 12:30
Bakarísstelpa stígur fram: Hnetuvínarbrauð afþídd í bakaríum „Bakkelsið kom næstum allt inn frosið og svo vorum við látin hita það upp," segir Heiðrún Backmann, fyrrverandi starfsmaður Bakarameistarans. Svo virðist sem bakaríin baki ekki bakkelsi á staðnum heldur láti afgreiðslustúlkur hita upp forbakaðar og frostnar vörur. 9. júní 2008 12:58