Hraðvirkari og ódýrari iPhone-sími væntanlegur - Þó ekki á Íslandi 10. júní 2008 21:38
Hraðvirkari og ódýrari iPhone-sími er væntanlegur á markað frá Apple tölvurisanum í yfir sjötíu löndum, þó ekki á Íslandi. Stjórnarformaður Apple, Steve Jobs, kynnti aðra kynslóð iPhone snjallsímans í gær. Síminn mun hraðvirkari en tæki helstu keppnauta. Eldri iPhone símar hafa aðeins fengist í Bandaríkjunum, Bretlandi, Frakklandi og Þýskalandi. Apple í Bandaríkjunum ræður hvar græjan er seld og hefur vilja einskorða notkun í hverju landi við eitt símafyrirtæki og heimtað hluta af tekjum. Þær kröfur munu aflagðar með nýjum iPhone. Hann kemur því á markað í tuttugu og einu landi auk Bandaríkjanna ellefta næsta mánaðar, þar á meðal í Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð, og mun kosta allt að þrjú hundruð bandaríkjadali, jafnvirði rúmlega tuttugu þúsund króna. Á næstu misserum kemur iPhone síðan á markað í fjörutíu og átta löndum til viðbótar þar sem samningar hafa náðst við símafyrirtækim - þar á meðal í Botsvana, Miðbaugs-Gíneu, og Liechtenstein. Ekki á Íslandi. Fréttastofa hafði samband við Apple í Bandaríkjunum sem harðneitaði að gefa nokkuð upp um framtíðar söluáform eða hvort viðræður væru áformaðar eða í gangi við íslensk símafyrirtæki. Humac ehf. hefur einkaleyfi á Apple vörum á Íslandi og í Skandinavíu og rekur Apple búðir þar. Sigríður Olgeirsdóttir, forstjóri, segir að Apple í Bandaríkjunum hafi náð samkomulagi við símafyrirtækið Telia um þjónustu í Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð. Ekki virðist mikill áhugi á viðræðum á Íslandi þar sem Apple í Bandaríkjunum virðist telja markaðinn of lítinn hér.
Mest lesið Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Fleiri fréttir Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sjá meira