Innlent

Kallar klárlega á frekari skoðun sprautunotkunar

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Rúna Guðmundsdóttir og Jóna Sigríður Gunnarsdóttir.
Rúna Guðmundsdóttir og Jóna Sigríður Gunnarsdóttir. MYND/Úr einkasafni

„Ég stefni á geðið og eitthvað vímuefnatengt," sagði Jóna Sigríður Gunnarsdóttir, sem útskrifast hjúkrunarfræðingur frá Háskóla Íslands næstkomandi laugardag, í spjalli við Vísi.

Með ummælunum vísar Jóna Sigríður til þess að áhugi hennar standi helst til starfa á geðsviði. Þær Rúna Guðmundsdóttir kynntu í Fréttablaðinu í gær lokaverkefni sitt í hjúkrunarfræðinni sem fjallaði um sprautunotkun íslenskra fíkla. Um þriðjungur fíklanna kvaðst hafa neytt heróíns sem fíkniefnalögregla telur að muni festa rætur hér fyrr en síðar.

„Þetta var bara það mest spennandi sem ég get hugsað mér, virkilega áhugavert og skemmtilegt," sagði Jóna Sigríður um rannsóknina. Þær Rúna ræddu við 69 fíkla sem voru ýmist í meðferð á Vogi eða vímuefnadeildum Landspítalans. Sagði hún fólkið hafa verið einstaklega opið og áhugasamt um að segja þeim Rúnu frá málum sínum.

Umfangsmeiri kynning fram undan

Jóna Sigríður telur niðurstöður rannsóknarinnar vissulega kalla á frekari skoðun. „Við erum enn þá að vinna úr þessu en það þarf klárlega að skoða betur hvernig vímuefnaneyslan er, hvaða efni er verið að nota og hvernig. Það er eitthvað sem hefur ekkert verið skoðað mjög mikið hér," sagði Jóna Sigríður og bætti því við að vinnan við verkefnið hefði tekið nánast heilt ár þótt hún hefði verið mismikil á hverjum tíma. „Hún var mjög mikil á köflum," sagði hún.

Fram undan hjá þeim stöllum er umfangsmeiri kynning á verkefninu fyrir viðeigandi aðilum en þær hafa þegar kynnt embætti landlæknis verkefnið. Jóna Sigríður hefur ekki ráðið sig til starfa enn sem komið er en segist, eins og fram kemur í upphafi, vilja helga sig störfum á þessum vettvangi.

Að lokum kvað Jóna Sigríður þær Rúnu vera ákaflega þakklátar starfsfólki Sjúkrahússins Vogs og vímuefnadeilda Landspítalans fyrir einstakt samstarf ásamt því sem þær kynnu leiðbeinanda sínum, dr. Helgu Sif Friðjónsdóttur, hinar bestu þakkir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×