Biskup fjallaði um stöðu barnsins í setningarræðu prestastefnu 10. júní 2008 22:17
Prestastefna var sett í Dómkirkjunni í kvöld. Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, flutti setningarræðu en í henni gerði hann stöðu barnsins að umtalsefni. Biskup hvatti til aukinnar samvinnu við alla þá aðila í samfélaginu sem bera heill barna fyrir brjósti. "Tökum höndum saman við þá aðila í samfélaginu sem bera heill barna fyrir brjósti! Efnum til viðburða, málþinga, samræðna við félagsþjónustu, skóla, félagasamtök sem hafa með málefni barna að gera. Átakið Verndum bernskuna! var ekki afmarkað átaksverkefni heldur sístæð áminning til samfélagsins. Höldum því á dagskrá!" Og hann kallaði eftir því að sóknirnar beittu kröftum sínum og fjármunum að barnafræðslu og unglingastarfi. Biskup kom í ræðu sinni inn á ný lög um grunnskóla og leikskóla og sagðist treysta því að kristinfræði yrði áfram kennd þó að hún sé ekki nefnd í lögunum, heldur eingöngu trúarbragðafræði. "Í hinum nýju lögum er kristinfræði ekki nefnd, aðeins trúarbragðafræði. Kirkjan treystir því að kristinfræði sé þar undir og sess hennar verði tryggður í námskrá. Við leggjum áherslu á að trúarbragðafræðsla og kristinfræði fari fram á faglegum forsendum skólans og að fyllsta tillit sé tekið til ólíkra lífs- og trúarskoðana af virðingu og umburðarlyndi. Það gerist ekki með því að útiloka hinn trúarlega þátt og kærar hefðir. " Meðfylgjandi er setningarræða biskups.
Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Fleiri fréttir Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Sjá meira