Erlent

Skemmtiferðaskip draga úr olíunotkun

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Siglingaleiðir stóru skemmtiferðaskipanna sem bjóða lúxusferðir um heimshöfin verða styttar eins og kostur er næstu misseri. Tilgangurinn er að draga úr olíunotkun sem verður æ þyngri baggi með síhækkandi eldsneytisverði.

Einhverjir missa þó spón úr aski sínum við breytingarnar og má þar nefna kanadísku borgina Quebec . Hver farþegi eyðir að meðaltali sem nemur 9.000 krónum þegar skemmtiferðaskip hefur viðdvöl þar og sum skipanna flytja yfir 3.000 farþega. Eftir styttingu siglingaleiðarinnar fjölgar hins vegar skipakomum til Portland í Bandaríkjunum með tilheyrandi fjárstreymi. Ekki liggur fyrir hvort færri skemmtiferðaskip koma til Íslands á næsta ári en í ár, sem var metár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×