Erlent

Hungursneyð í Afríku

Hungursneyð er yfirvofandi á gríðarstóru svæði í austanverðri Afríku. Matvælahjálp Sameinuðu þjóðanna segir að hátt í fimmtán milljónir manna þurfi aðstoðar við eigi ekki að koma til stórkostlegra hörmunga.

Loftslagsbreytingar eru daglegur veruleiki í austanverðri Afríku þar sem úrkoma undanfarin ár hefur verið minni og-eða óstöðugri en vant er til og þurrkar meiri - og á öðrum tímum - en fólk hefur vanist.

Fátækt er þar landlæg, sem og vopnuð átök og dýrasjúkdómar - og nú hefur verðbólga, hátt olíuverð og ónógur matur bæst við. Hinir verst stöddu eru ekki lengur aðeins fólk í sveitum, heldur einnig milljónir manna í þéttbýli, að því er talsmaður Matvælahjálpar Sameinuðu þjóðanna sagði fréttamönnum í Nairobi fyrir helgina.

Um tuttugu milljónir manna búa í fátækrahverfum í löndunum í austanverðri Afríku - allt frá Eritreu og Sómalíu vestur til Uganda og suður til Tanzaníu. Þetta fólk horfist nú í augu við hungurvofuna sem aldrei fyrr vegna þeirrar efnahagskreppu sem gengur yfir heiminn. Víða hefur verð á matvælum hækkað um 30-50%, eins og í Kenya - og þar bætist við að ólgan í kjölfar forsetakosninganna um áramótin dró talsvert úr landbúnaðarframleiðslu.

Sameinuðu þjóðirnar fara nú fram á rúmlega 400 milljónir Bandaríkjadala, eða andvirði liðlega þrjátíu milljarða króna, til að bregðast við þeim vanda sem við blasir. Þetta er til viðbótar við það fé sem þegar er varið til að fæða hungrað fólk á svæðinu.

Þær fjórtán til fimmtán milljónir manna sem þurfa matvælaaðstoð á næstu mánuðum eru í Eþíópíu, í Sómalíu, í Kenya, Uganda, Eritreu og Djibouti. Ekki er ólíklegt að suðurhluti Súdans bætist í þennan hóp, - og ef taka má mið af ástandinu 2006, þá gæti það sama gilt um Tanzaníu, Burundi og Rúanda.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×