Lífið

Bjórkippa undir í Áramótaskaupinu

Hvofr birtist á undan? Annaðhvort Jói eða Gói á von á kippu á nýársdag.
Hvofr birtist á undan? Annaðhvort Jói eða Gói á von á kippu á nýársdag.

Það er mál þeirra sem til þekkja að leikararnir Jói og Gói – Jóhannes Haukur Jóhannesson og Guðjón Davíð Karlsson – verði helstu spútnikar Skaupsins í ár. Þeir leika nú báðir í fyrsta skipti í þessum vinsælasta sjónvarpsþætti þjóðarinnar.

„Í leiklistarskólanum vorum við með veðmál um það hvor myndi leika fyrst í Skaupinu,“ segir Jói, en þeir Gói útskrifuðust frá leiklistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2005. „Við héldum að ég væri búinn að vinna þetta því það var hringt í mig fyrst. Svo var hringt í Góa tveimur vikur síðar svo núna stendur veðmálið um það hvor birtist fyrst í mynd. Það er bjórkippa undir.“

Skaupið í ár er skrifað af fimm manns, Sigurjóni Kjartanssyni, Hugleiki Dagssyni, Hjálmari Hjálmarssyni, Ilmi Kristjánsdóttur og Silju Hauksdóttur, sem leikstýrir því. Svo mikið var að gerast á árinu að ný atriði bættust við fram í síðustu viku fyrir jól. Skaupið er frábrugðið fyrri skaupum að því leyti að það var tekið upp fyrir framan áhorfendur – „Dálítið eins og Saturday Night Live,“ segir Jói. „Það voru svona eitt hundrað áhorfendur og það var gaman að gera þetta svona „læf“. Maður var að fá sama „fíddbakk“ og í leikhúsinu.

Sumt var tekið tvisvar, þrisvar, og áhorfendur virtust skemmta sér vel. Það var mikið hlegið. Ég vona að þeir hafi ekki bara verið svona meðvirkir.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.