Innlent

Gefur lítið fyrir athugasemdir ungliða um mannabreytingar

Geir H. Haarde.
Geir H. Haarde.

Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, gefur lítið fyrir athugasemdir Heimdalls, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, sem krafðist þess í gær að stjórn Seðlabankans og yfirstjórn Fjármálaeftirlitsins yrði vikið frá og mannabreytingar yrðu gerðar ríkisstjórninni.

,,Ég er náttúrulega ekki sammála þeim og vísa á bug því sem sagt er um ríkisstjórnina í þessari ályktun. Það er málfrelsi í Sjálfstæðisflokknum og við virðum það að sjálfsögðu," sagði Geir við blaðamenn eftir ríkisstjórnarfund í dag. Eins og sakir standa væri ekki verið að neinum breytingum á yfirstjórn Seðlabankans.








Tengdar fréttir

Heimdallur vill mannabreytingar í Seðlabankanum

Von er á yfirlýsingu frá stjórn Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, síðar í dag. Þar er þeim tilmælum meðal annars beint til Ríkisstjórnarinnar að mannabreytinga sé þörf í Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×