Alþýðukona leggur útrásarforsetann 21. desember 2008 07:00 Sigmundur segir það í takt við tímann að alþýðukona leggi útrásarforsetann. fréttablaðið/Anton „
Jú, jú, þetta eru nánast landráð. Og ég vona að forsetinn fyrirgefi mér þetta,“ segir Sigmundur Ernir Rúnarsson, rithöfundur og sjónvarpsmaður. Og bætir við: „En það er í takt við tíðarandann að alþýðukona leggi útrásarforsetann.“ Nú er bardaginn um bóksöluna að ná hámarki. Og bókaútgefendur eru ánægðir, sala bóka fer fram úr björtustu vonum og stefnir í að Arnaldur Indriðason slái enn eitt metið og fari jafnvel yfir 30 þúsund seld eintök. Og sala bókar Sigmundar um Magneu Guðmundsdóttur, óþekktu alþýðukonuna, hefur farið fram úr björtustu vonum og er mest selda ævisagan. Saga af forseta eftir Guðjón Friðriksson er í öðru sæti – óvænt. Útgefandinn Pétur Már Ólafsson hjá Veröld er kátur. „Við þóttum býsna djörf að prenta 5.000 eintök af Magneu í upphafi en viðtökurnar hafa verið langt umfram væntingar; mest selda ævisagan, besta ævisagan að mati starfsfólks bókaverslana – og í dag kemur hressileg viðbótarprentun á lager.“ Pétur Már dregur ekki úr því að bjart sé yfir Veröldinni. Og upplýsir að Auðn Yrsu Sigurðardóttur sé á fljúgandi siglingu. „Við létum prenta risaupplag af Auðninni fyrr í haust, 10.000 eintök, og þótti óðsmanns æði. En… við fengum nú fyrir helgina myndarlega viðbót á lager úr Odda, enda fyrsta prentun á þrotum. Það stefnir því í algjört met hjá Yrsu og ætti bókin að seljast í um 13.000 eintökum.“
Mest lesið Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Lífið Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni David Hockney er látinn Menning Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Lífið Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Lífið samstarf Fleiri fréttir Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Sjá meira