Allar flottustu svíturnar upppantaðar um áramótin 21. desember 2008 06:00 Allar flottustu svíturnar í Reykjavík eru upppantaðar um áramótin. Ingólfur Haraldsson, hótelstjóri á Nordica Hilton, þarf að sjá til þess að sá sem greiðir 125 þúsund krónur fyrir nóttina í forsetasvítunni verði ánægður með dvölina.
Allar dýrustu svítur Reykjavíkur eru upppantaðar yfir áramótin. Fréttablaðið hafði samband við hótelstjóra fjögurra frægustu hótela höfuðborgarinnar og alls staðar var sama sagan; hvergi var hægt að panta svítu á gamlárskvöld, þær væru upppantaðar. Þessi lauslega könnun Fréttablaðsins leiddi í ljós að dýrasta svítan er á Hilton Nordica-hótel við Suðurlandsbraut. Nóttin þar kostar litlar 125 þúsund. Að sögn Ingólfs Haraldssonar hótelstjóra hefur hún þegar verið pöntuð um áramótin. Nordica Hilton býður reyndar upp á tvær minni svítur og nóttin í þeim kostar 55 þúsund. Þær eru báðar fráteknar yfir áramótin. Ingólfur segir þó að aðeins minna sé um pantanir þetta árið heldur en í fyrra. „Þá vorum við smekkfull en nú er bara fullt,“ segir Ingólfur sem reiknar með því að um 350 gestir ætli sér að vakna á nýju ári við ljúfan umferðarnið frá Suðurlandsbrautinni. Sama var upp á teningnum hjá Eiríki Inga Friðgeirssyni, hótelstjóra Hótels Holts. Hann var reyndar ekki búinn að ganga frá öllum pöntunum á stóru svítunum en sagði regluna einfaldlega þá að þær væru fullsetnar yfir áramótin. Eiríkur segir að flestir gestir dveljist í fjóra daga og stærsti hluti þeirra fari heim á nýársdag. „Flugeldarnir eru stærsta aðdráttaraflið,“ segir Eiríkur. Vinsælasta hótel þeirra sem vilja njóta lífsins í miðborginni er án nokkurs vafa 101 Hotel. Þar fengust þær upplýsingar að báðar svítur hótelsins væru uppteknar yfir áramótin; annars vegar glæsileg íbúðarsvíta þar sem nóttin er verðlögð á 111 þúsund og hins vegar svíta með svölum en næturgisting þar kostar rúmar 83 þúsund krónur. Hótel Saga hefur notið mikilla vinsælda meðal erlendra gesta sem koma hingað til lands yfir áramótin. Kristján Daníelsson hótelstjóri segir að allar svíturnar séu uppbókaðar. Þar sé stolt hótelsins, Forsetasvítan, engin undantekning en nóttin þar kostar 75 þúsund krónur. Auk þess hefur hótelið yfir að ráða átta minni svítum. Þær eru þegar pakkaðar. „Við erum með smá dagskrá fyrir gestina á gamlárskvöld. Gestirnir fá sér að borða í Súlnasal og svo á miðnætti fer fólk upp á Grillið, fær sér kokkteil og snittur og horfir á flugeldana,“ segir Kristján.
Mest lesið Fólk eigi ekki að vera feimið við sleipiefnið Heilsa „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Bíó og sjónvarp Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Melabúðin fagnar sjötíu árum Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Lífið Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Lífið Fleiri fréttir Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Sjá meira