Erlent

Bill Clinton fer á framboðsfund með Obama

Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna. Mynd/ AFP.
Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna. Mynd/ AFP.

Barack Obama forsetaframbjóðandi Demokrata mun í næstu viku njóta aðstoðar Bills Clinton fyrrverandi forseta í kosningabaráttunni, þegar þeir mæta saman á framboðsfund í Orlando í Flórídaríki. Það verður hlutverk Clintons að sannfæra kjósendur, sem studdu Hillary eiginkonu hans í forkosningum Demokrata, um ágæti Baracks Obama. Hillary hélt sjálf framboðsfund með Obama í síðustu viku. Flórída er eitt af þeim ríkjum sem talið er að geti haft úrslitaáhrif í forsetakosningunum, sem fram fara þann fjórða nóvember næstkomandi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×