Erlent

Banaslys á byssusýningu

Óli Tynes skrifar

Átta ára drengur skaut sjálfan sig óvart í höfuðið á byssusýningu í Bandaríkjunum í gær.

Gestum á sýningunni var boðið að skjóta af allskonar skotvopnum. Drengurinn hafði þegar skotið af nokkrum þeirra. Slysið varð þegar hann skaut af lítilli Uzi handvélbyssu sem er haldið á með annarri hendi.

Bakslagið af skothríðinni varð til þess að hlaupið klifraði upp og síðasta skotið lenti í höfði hans. Hann lést samstundis.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×