Berluconi segir Obama vera sólbrúnan 7. nóvember 2008 12:04 Silvio á góðri stundu með fráfarandi forseta.
Forsætisráðherra Ítalíu er enn einusinni í súpunni vegna óviðeigandi ummæla. Hann lýsti Barack Obama sem sólbrúnum. Silvio Berlusconi var að tala við blaðamenn að loknum fundi með Dmitry Medevedev forseta Rússlands. Hann var meðal annars spurður um útlitið í samskiptum Rússlands og Bandaríkjanna eftir að Barack Obama var kjörinn forseti. Sambúð þessara tveggja landa hefur versnað til muna síðustu misserin. Berlusconi svaraði því til að ungur aldur forsetanna ætti að auðvelda þeim að tala saman. Medvedev er 43 ára og Obama 47. Svo brosti Berlusconi og sagði; Ég sagði Rússneska forsetanum að Obama hefði allt til þess að bera að hægt væri að ná samkomulagi við hann. Hann væri ungur, myndarlegur og jafnvel sólbrúnn. Þetta var hent á lofti sem óviðeigandi ummæli um fyrsta svarta forseta Bandaríkjanna. Berlusconi varði sig hinsvegar með því að segja að hann hefði aðeins ætlað að hrósa Obama. Berlusconi sem sjálfur er 72 ára gamall er þekktur fyrir allt annað en pólitíska rétthugsun. Eitt sinn líkti hann þýskum þingmanni við vörð í útrýmingarbúðum Nazista. Eftir ellefta september árið 2001 sagði hann að vestræn menning væri hafin yfir islam og nýlega sagði hann svo að það væri of margar konur í ríkisstjórn Spánar.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Sjá meira