Erlent

Mannskæðar árásir í Írak

MYND/AP

Tuttugu og átta eru látnir og 68 særðir eftir röð sjálfsmorðsárása í miðborg Bagdad í morgun. Um er að ræða mannskæðustu árásir í Írak í marga mánuði.

Svo virðist sem tvær bílsprengjur hafi sprungið nærri fjölfarinni veitingahúsagötu á austurbakka árinnar Tígris og meðal þeirra sem létust voru fjölmargir námsmenn. Þegar lögregla og hermenn komu á vettvang sprengdi svo maður sjálfan sig í loft upp þannig að enn fleiri létust.

Mjög hefur dregið úr árásum vígamanna í Írak undanfarna mánuði en stjórnvöldum hefur þó ekki tekist að ráða niðurlögum hópa uppreisnarmanna að fullu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×