Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra braut jafnréttislög 16. desember 2008 15:13 Andri Árnason, formaður Kærunefndar jafnréttismála.
Kærunefnd jafnréttismála hefur komist að þeirri niðurstöðu að Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Vesturlandi hafi brotið gegn ákvæðum laga um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna, þegar karlmaður var ráðinn í starf forstöðumanns Fjöliðjunnar á Akranesi á síðasta ári. Þetta er í fyrsta sinn á þessu ári sem kærunefnd álítur að jafnréttislög hafi verið brotin, og jafnframt fyrsta málið varðandi stöðuveitingu sem hefur unnist fyrir kærunefndinni frá árinu 2006. Þetta kemur fram í frétt á vef Jafnréttisstofu. Þar segir að tíu umsækjendur voru um stöðu forstöðumanns, þrír karlmenn og sjö konur. Fjórir umsækjendur hafi verið teknir í viðtöl og að þeim loknum hafi karlmaður verið ráðinn í stöðuna. Ein kvennanna hafi kært ráðninguna til kærunefndar jafnréttismála á þeim forsendum að hún væri hæfari en sá sem hafi verið ráðinn. Í niðurstöðu kærunefndarinnar segir að menntun þess sem starfið hlaut sé umtalsvert minni en kæranda. Þá halli ekki á kæranda hvað starfsreynslu snertir. Huglægt mat á persónulegum eiginleikum þess sem starfið hlaut geti ekki vikið til hliðar hlutlægum mælistikum á borð við sérhæfða menntun og starfsreynslu. Loks segir kærunefndin að svæðisskrifstofan geti ekki borið fyrir sig vilja til þess að jafna hlut kynjanna í störfum í málaflokknum, þar sem það eigi aðeins við þegar um jafnhæfa einstaklinga sé að ræða. Kærunefndin beini því til Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Vesturlandi að leitað verði lausna í málinu sem kærandi geti sætt sig við.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Fleiri fréttir Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Sjá meira