Viðræður í Zimbabwe halda áfram 12. ágúst 2008 13:00
Samningaviðræðum stjórnar og stjórnarandstöðu í Zimbabwe verður haldið áfram nú eftir hádegið og enn vonast menn til að niðurstaða fáist í þær á næstu klukkustundum. Viðræðurnar ramba nú á hnífsegg og getur brugðið til beggja vona. Robert Mugabe forseti er sagður harðneita að gefa eftir völd og stjórnarandstæðingar eru jafn ákveðnir í að hann verði að draga sig í hlé. Bæði Mugabe of Tsvangirai telja sig réttkjörna forseta landsins. Þótt Tsvangirai sitji nú á samningafundum með Mugabe hefur hann ekki horfið frá þeirri afstöðu að þótt hann geti unnið með hófsamari öflum í stjórnarflokknum þá sé útilokað að hann hafi stjórnarsamstarf við Mugabe sjálfan. Tsvangirai og hans menn vilja í mesta lagi að Mugabe verði valdalaus forseti. Engu að síður eru þessar viðræður taldar besta og jafnvel eina leiðin til að leysa þau gríðarlegu vandamál sem Zimbabwe stendur frammi fyrir eftir nærri þriggja áratuga stjórn Mugabes. Forsetinn var bjartsýnn í gærkvöld þegar fundum lauk og sagði fréttamönnum að samningar yrðu örugglega gerðir í dag. Morgan Tsvangerai, leiðtogi stjórnarandstæðinga, var ekki eins bjartsýnn en sagði að sagt yrði frá árangri þegar hann hefði náðst.
Mest lesið Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð Innlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Fagnað á götum Kabúl Erlent Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Innlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent Fleiri fréttir Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump Sjá meira