Innlent

Metfjöldi umsækjenda um nám í lagadeild HÍ

Róbert Spanó er starfandi deildarforseti lagadeildar.
Róbert Spanó er starfandi deildarforseti lagadeildar. MYND/HEiða

Aldrei hafa borist fleiri umsóknir í grunnnám við lagadeild Háskóla Íslands en í ár en þær reyndust 327.

Um er að ræða 40 prósenta aukningu á milli ára eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá lagadeildinni. Þar segir enn fremur að við brautskráningu Háskóla Íslands á laugardaginn kemur muni 71 stúdent úrskrifast frá lagadeild, 44 með BA-próf og 27 með meistara- eða kandidatspróf í lögfræði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×