Viðskipta- og hagfræðingar með yfir hálfa milljón í mánaðarlaun 11. júní 2008 11:47
Viðskipta- og hagfræðingar eru að meðaltali með 540 þúsund krónur í heildarlaun samkvæmt kjarakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Félag viðskipta- og hagfræðinga. Könnunin var birt í morgun en hún byggist á svörum nærri tvö þúsund viðskipta- og hagfræðinga. Meðalheildarlaunin hafa hækkað um fjögur prósent frá því í fyrra en til samanburðar höfðu launin hækkað áður um 13 prósent á tveggja ára tímabili eða um 6,5 prósent á ári. Þegar niðurstöðurnar eru greindar eftir starfsaldri svarenda kemur í ljós að laun þeirra sem eru með minnstan starfsaldur hækka hlutfallslega meira en þeirra sem hafa starfað lengur sem viðskipta- eða hagfræðingar. Þá sýnir könnunin að laun kvenna hafi hækkað hlutfallslega meira en laun karla. Mánaðarlaun kvenna hækka um ríflega 11 prósent og er miðgildi þeirra nú 500 þúsund krónur en laun karla hækka um 2,4 prósent og eru nú 600 þúsund krónur á mánuði. Þegar ekki er tekið tillit til annarra þátta mælast því karlar með fimmtungi hærri laun en konur. „Vinnuvika karla er að meðaltali 51,6 klukkustundir en kvenna að meðaltali 47,5 stundir. Þegar launamunurinn er leiðréttur með tilliti til vinnuframlags mælist munurinn nú 15,6% en var um 21% í Kjarakönnunum FVH árin 2007 og 2005. Þegar launamunur kynjanna er svo leiðréttur með tilliti til fleiri þátta eins og menntunar, starfs, atvinnugreinar, aldurs, vinnuframlags, mannaforráða og starfsaldurs kemur í ljós að launamunur kynjanna virðist vera heldur að minnka. Nú mælist leiðréttur launamunur 7,5% en var 8,8% árið 2007, 7,6% árið 2005 og 6,8% árið 2003," segir í tilkynningu Félags viðskipta- og hagfræðinga.
Mest lesið Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Innlent Mannfallið að nálgast tvær milljónir Erlent Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Innlent Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Erlent Svíar líta til kjarnorkuvopna Erlent Höfðu afskipti af „trylltum“ manni og ofurölvi útlending Innlent Rúmlega tvöhundruð skjálftar við Lambafell í Þrengslum Innlent Þrír eldar á sama tíma á höfuðborgarsvæðinu Innlent Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Innlent Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Innlent Fleiri fréttir Rúmlega tvöhundruð skjálftar við Lambafell í Þrengslum Höfðu afskipti af „trylltum“ manni og ofurölvi útlending Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Þrír eldar á sama tíma á höfuðborgarsvæðinu Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Púðurtunnan Vestanhafs, þandar taugar og hörð lending Engar kveðjur fengið frá Kristrúnu Borgarfulltrúi fer ekki aftur fram og hættir í Pírötum Ekki hægt að fullyrða að andlát hafi tengst Covid-19 bólusetningu „Einfaldlega ósammála“ gagnrýni ráðuneytisins Kynna einn frambjóðanda á dag næstu daga Ekki skrýtið að eitthvað bresti vegna álags á framlínustarfsmenn Tveir grunaðir um að rækta hundruð kannabisplantna Verkalýðshreyfingin úti á túni með sitt tal? Mál rússnesku fjölskyldunnar: Króatía sé talið öruggt land Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Heiða tekur annað sætið í Reykjavík Meiri hveralykt af vatninu vegna viðhalds og viðgerðar Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Heiða hefur ekki heldur svarað uppstillingarnefnd Helga Kristín gengur til liðs við Miðflokkinn Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Stefnir í hallarekstur og uppsagnir hjá Stígamótum „Þetta er auðvitað glæsilegt fyrir flokkinn“ Þingfundi ekki frestað vegna handboltans Leitað að fleira fólki á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Eldur kviknaði í Strætó Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Sjá meira