Lífið

Nirvana-barnið enn í lauginni

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Spencer mættur í laugina á ný. Aðeins eldri og nú á fimmfalt hærra kaupi fyrir myndatökuna.
Spencer mættur í laugina á ný. Aðeins eldri og nú á fimmfalt hærra kaupi fyrir myndatökuna. MYND/Geffen/Splash News

Margir minnast án efa hins sérstaka plötuumslags Nirvana-plötunnar Nevermind frá 1991 og einhverjir þeirra sömu eiga vafalaust ljúfsárar æskuminningar frá sumrinu 1992 þegar lagið „Smells like Teen Spirit" ætlaði allt um koll að keyra í samkvæmum og á skemmtistöðum.

Fæstir hafa þó sennilega velt því fyrir sér hver lagði til nýfæddan og kviknakinn líkama sinn og birtist rokkþyrstum Nirvana-aðdáendum sem hvítvoðungur sem syndir á eftir dollaraseðli á öngli.

Þetta er Spencer Elden sem nú er 17 ára gamall og fékk greidda 1.000 dollara til að endurtaka atriðið fyrir ljósmyndara. Það er töluvert betra tilboð en 200 dollararnir sem greiddir voru fyrir upphaflegu myndatökuna árið 1991.

Elden er lærlingur götulistamannsins Shepard Fairey um þessar mundir og með mörg járn í eldinum. Þá er ekki útilokað að hann taki stefnuna á Hollywood en að öðru leyti segist hann bara vera ofurvenjulegur bandarískur unglingur sem hafi gaman af lífinu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.