Ellefti ritstjóri Vals ófundinn 18. desember 2008 04:00 Dramatísk ákvörðun að segja starfi sínu á DV lausu. „
Þeir eru tíu ritstjórarnir á þriggja ára ferli sem blaðamaður," segir Valur Grettisson blaðamaður. Valur sagði upp störfum á DV í byrjun viku og samkvæmt tilkynningu unir hann ekki lygum og ritskoðun þar á bæ. Valur byrjaði á DV árið 2005 skömmu áður en allt varð brjálað vegna Ísafjarðarmáls. Ritstjórarnir Mikael Torfason og Jónas Kristjánsson hættu og við tóku Páll Baldvin Baldvinsson og Björgvin Guðmundsson. Valur fór á Blaðið og þar var Ásgeir Sverrisson skammlífur, við tók Sigurjón M. Egilsson og þá Trausti Hafliðason. „Þá stökk ég yfir á Mannlíf og fékk Reyni Traustason yfir mig þar. Svo Þórarin Þórarinsson. Ég fór aftur á DV til Reynis og Jóns Trausta Reynissonar," segir Valur. Hann fór frá því að vera þjónn á La Primavera í blaðamennskuna. Veitingabransinn er skrautlegur en sveitasæla á við fjölmiðlana. „Ég hef lent í fáránlegustu hremmingum í blaðamennsku. En það jafnast ekkert fag á við það. Þetta er ástar/haturs-samband," segir Valur. Ef ellefti ritstjórinn hefur samband mun Valur stökkva án þess að hugsa sig um. „Ég er duglegur. Og elska starfið." Dramatísk ákvörðun var að segja starfinu lausu nú þegar Ísland gengur í gegnum hyldjúpa kreppu. Valur er nýbakaður faðir og atvinnulausir blaðamenn á Íslandi nálgast hundrað. „Ég á átta mánaða strák og konu sem þarf sína skó," grínast Valur. „En hún stóð með mér hundrað prósent. Allt traust, sem er heilagt milli blaðamanns og ritstjóra, var horfið. Ég treysti þeim feðgum ekki lengur," segir Valur sem lifir umbrotatíma. Faðir hans greindist með lungnakrabbamein fyrr í vetur og Valur segir huggun harmi gegn að geta varið með honum tíma en þurfa ekki að vera vakinn og sofinn í DV-hasar. „Já, og geta haldið heilög jól."- jbg
Mest lesið Fólk eigi ekki að vera feimið við sleipiefnið Heilsa „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Bíó og sjónvarp Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Melabúðin fagnar sjötíu árum Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Lífið Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Lífið Fleiri fréttir Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Sjá meira